Breikkun Suðurlandsvegar kostar 15,9 milljarða

Suðurlandsvegur í Svínahrauni
Suðurlandsvegur í Svínahrauni

Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um tvöföldun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svínahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur, en þá er um eina aukaakrein að ræða. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.

Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri hafa kynnt fulltrúum nokkurra sveitarstjórna á Suðurlandi og Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi tillögur og áætlanir um hvernig hagað verður tvöföldun Suðurlandsvegar. Meginhluti leiðarinnar verður 2+2 vegur en kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum þar sem vegbreidd er 15,5 metrar, að því er segir í tilkynningu.

 „Þar sem Suðurlandsvegur er með 2+2 sniði verður þversnið hans breitt, með 11 metra miðjusvæði, sem er sams konar tilhögun og á Reykjanesbraut. Þar sem aðstæður eru þröngar, til dæmis á kafla við Rauðavatn, verður vegurinn með svokölluðu þröngu vegsniði, þ.e. með aðskildum akstursstefnum með vegriði og 2+2 kafli um Kamba verður einnig með þeirri tilhögun.

2+1 kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður með vegriði en breiðari en núverandi 2+1 kafli í Svínahrauni. Einnig stendur til að breikka þann 2+1 kafla um einn og hálfan metra, úr 14 metrum í 15,5," samkvæmt tilkynningu.

Einn milljarður í verkefnið í ár

Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna, eins og áður sagði. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.

Meðalumferð á dag er misjöfn um hina ýmsu kafla Suðurlandsvegar og ræður hún meðal annars ákvörðun um útfærslu vegarins og hvort vegamót eru mislæg, á hringtorgi eða í plani. Umferð næst höfuðborginni er tæplega 13 þúsund bílar en er komin niður í um 8 þúsund bíla við Lögbergsbrekku. Á kaflanum milli Lögbergsbrekku og Kambabrúnar er meðal dagsumferðin um 6.500 bílar og um 7.300 milli Hveragerðis og Selfoss, samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert