Býður upp á fund strandríkja um makríl

Makríll.
Makríll.

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, og Helga Pedersen, sjávarútvegsráðherra Noregs, hafa skipst á bréfum varðandi makrílveiðar Íslendinga. Sagði Steingrímur m.a. að væri tilbúið til þess að halda sérstakan fund strandríkja er málið varðar sem fyrst á Íslandi.

Þau Steingrímur J. Sigfússon og  Helga ræddust við í síma í fyrradag og í kjölfar þessa símtals barst sjávarútvegsráðuneytinu bréf frá Noregi sem varðar makrílveiðar Íslendinga. Því bréfi hefur nú verið svarað með bréfi sem sent var til Noregs um hádegisbil í dag.

Þar kemur fram að með hlýnandi veðurfari undanfarna áratugi hafi makrílstofninn leitað norðar í höfin og dvelji nú í auknum mæli í íslenskri landhelgi. Íslendingar telji sig vera í fullum rétti að veiða makríl innan sinnar lögsögu. Makrílveiðar Íslendinga séu lögmætar og því rangt að tala um ólögmætar veiðar.

Þá sé Ísland strandríki líkt og veiðarnar í íslensku lögsögunni sanni og slíkar veiðar strandríkja í eigin lögsögu heyri ekki undir Norðaustur Atlantshafs fiskveiðinefndina. Íslendingar eigi því sama rétt til veiða á makríl í íslensku lögsögunni og Norðmenn, Færeyingar og ESB til að veiða á markríl í sínum lögsögum. Þessar þjóðir hafa hins vegar útilokað Íslendinga frá þáttöku í stjórn veiðanna í meira en áratug þó það liggi fyrir  að þessi ríki hafi skyldur til að semja við Íslendinga samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og Úthafsveiðisamningnum.

Steingrímur bauð í bréfi sínu til Pedersen, að Ísland héldi sérstakan fund strandríkja, sem málið varðar sem fyrst á Íslandi. Samsvarandi boð verður sent til Færeyja og ESB eftir helgina.

Steingrímur hefur óskað eftir því við formenn sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og utanríkismálanefndar Alþingis að hann mæti á sameiginlegan fund þessara nefnda á mánudagsmorgun til að kynna stöðu þessara mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert