[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Innlent | Morgunblaðið | 28.3.2009 | 05:30

Meint kynferðisbrot á meðferðarheimili rannsakað

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is

Lögregla rannsakar meint kynferðisbrot starfsmanns á meðferðarheimili á Norðurlandi gegn unglingsstúlku á heimilinu. Manninum, sem er á fertugsaldri, hefur verið vikið frá störfum meðan málið er í rannsókn. Þessi sami starfsmaður var sakaður um hliðstætt brot á meðferðarheimilinu fyrir um ári. Rannsókn á því máli leiddi ekki til ákæru heldur var málið fellt niður á rannsóknarstigi.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, staðfesti í gær að rannsókn færi nú fram en vildi ekki tjá sig efnislega um seinna málið þar sem rannsókn væri á frumstigi. „Það eru starfsreglur Barnaverndarstofu að þegar barn greinir frá kynferðisbroti er þegar í stað óskað eftir lögreglurannsókn og var það gert í báðum tilvikum af hálfu barnaverndaryfirvalda,“ segir Bragi. Við þær aðstæður er viðkomandi vikið frá störfum þar til rannsókn máls er lokið.

 

Taldi ekki að lög stæðu til uppsagnar

Varðandi fyrra málið sagði Bragi að meðan rannsókn fór fram hefði maðurinn tímabundið verið leystur frá störfum. Hann hefði síðan verið fluttur til starfa á drengjaheimili eftir að lögreglurannsókn leiddi ekki til ákæru. Maðurinn starfaði þar þangað til í haust er því heimili var lokað og fór hann þá aftur í sitt gamla starf á meðferðarheimilinu þar sem eru bæði drengir og stúlkur.

Í fyrra málinu var um tvær stúlkur að ræða og greindi önnur þeirra frá kynferðisbroti, að sögn Braga. Rekstraraðili meðferðarheimilisins taldi ekki að lög stæðu til uppsagnar og taldi minni líkur en meiri á að maðurinn hefði til sakar unnið. Að mati rekstraraðilans væri flutningur í starfi fullnægjandi varúðarráðstöfun.

 

Framburður stangaðist á

Að sögn Braga var niðurstaða fyrri rannsóknarinnar nokkuð afdráttarlaus, þar sem framburður stúlknanna stangaðist á og gegn eindreginni neitun sakbornings var málið fellt niður af lögreglu og ákæruvaldi.

Umrætt meðferðarheimili er einkarekið en er með þjónustusamning við Barnaverndarstofu. Bragi segir að ákvörðun um að hafa viðkomandi starfsmann áfram í vinnu hafi verið tekin af rekstraraðilanum en Barnaverndarstofa hafi fylgst með framvindu málsins. „Við treystum okkur ekki til að gefa fyrirmæli um uppsögn þessa starfsmanns miðað við þær upplýsingar sem fyrir lágu,“ sagði Bragi en hann hefur dvalið norðanlands síðustu daga til að fara yfir málið.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær