Verðlækkun á MS-lyfi

Lyfjagreiðslunefnd hefur endurskoðað verð á lyfinu Tysabri, sem MS-sjúklingar nota, til samræmis við meðalverð á lyfinu í samanburðarlöndunum Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Verðlækkunin er að raunvirði um 18,5%.

Lyfjagreiðslunefnd segir, að gera megi ráð fyrir að um sé að ræða 18 milljón króna lækkun á árskostnaði á heildsöluverði miðað við sölu lyfsins á síðasta ári. Í lyfjaverðskrá aprílmánaðar sem hefur verið birt á heimasíðu Lyfjagreiðslunefndar, www.lgn.is er skráð nýtt verð á lyfinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert