

Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð, grunaður um að hafa reynt að smygla fíkniefnum innvortis. Þorvaldur Örn Kristmundsson
Fíkniefnin hafa ekki skilað sér
Bloggað um fréttina
-
HuldabeibHahahaharðlífi??
-
Finnur BárðarsonGengur ekkert
Fíkniefni, sem belgískur karlmaður reyndi að smygla til landsins innvortis, hafa ekki enn skilað sér, að sögn varðstjóra lögreglunnar í Reykjanesbæ.
Maðurinn er undir stöðugu eftirliti lögreglunnar. Að sögn varðstjóra lögreglunnar geta liðið nokkrir dagar þar til fíkniefni, sem reynt er að smygla innvortis, skila sér. Líklegt er talið að það gerist núna um helgina eða á mánudaginn.
Belginn er á þrítugsaldri og flúði frá lögreglu eftir handtöku í Leifsstöð á fimmtudag. Hann náðist morguninn eftir í miðbæ Keflavíkur. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. apríl.
Til baka








Senda inn efni

