

Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra og Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. mbl.is/Sverrir
Styrkir stórfyrirtækja til nauðstaddra
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir.Með snjallari hugmyndum síðari ára.
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirVæri ekki nær að fólk fengi vinnu
-
Helgi KristóferssonSenda þetta til Mæðrastyrksnefnd eða Rauða
-
Guðmundur Andri SkúlasonWe pay back... ok – Now you forget... OK!!!
-
Edda AgnarsdóttirSpurningin er:
-
Jakob Falur KristinssonFjölskylduhjálp Íslands
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands skorar á Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að láta 55 milljóna styrki frá FL Group og Landsbankanum renna til Fjölskylduhjálparinnar í stað þess að skila fjármununum til þrotabúa fyrirtækjanna. Peningarnir færu þar beint í lögfræðihítina, eins og Ásgerður Jóna orðar það í áskorun sinni.
Ásgerður Jóna Flosadóttir býður Bjarna Benediktssyni í heimsókn til Fjölskylduhjálparinnar svo hann geti með eigin augum séð þá eymd sem ríkir hjá alltof mörgum fjölskyldum í dag.
Áskorun Ásgerðar Jónu til Bjarna Benediktssonar
„Ég vil leggja það til við Bjarna Benediktsson formanns Sjálfstæðisflokksins að hann leggi þessar 55 milljónir til Fjölskylduhjálpar Íslands í stað þess að skila þessum fjármunum sem munu bara lenda í lögfræðihítina í kringum þessi tvö fyrirtæki.
Í dag var úthlutað matvælum til yfir 350 fátækra fjölskyldna sem leituðu til Fjölskylduhjálpar íslands. Að fá þessar 55 milljónir til að hjálpar íslenskum fjölskyldum næstu 4 árin væri góðverk að hálfu Sjálfstæðisflokksins.
Ég býð fyrir hönd okkar 25 sjálfboðaliða Bjarna Benediktssyni í heimsókn til okkar næsta miðvikudag og upplifa þá miklu eymd sem ríkir hjá allt of mörgum íslenskum heimilum í dag, hvort sem um er að ræða fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni.
Fjölskylduhjálp Íslands upplifir mikinn hlýhug frá íslenskum fyrirtækjum enda væri ekki hægt að hjálpa slíkum fjölda fjölskyldna nema fyrir þeirra tilstilli fyrirtækjanna. Bestu þakkir til ykkar.“
Til baka








Senda inn efni

