Götuvirki hústökufólksins
Bloggað um fréttina
-
Guðrún Emilía GuðnadóttirÍ sátt og samlyndi
-
Sylvíaflott hjá þeim!
-
Vésteinn ValgarðssonMeistarar
-
Einar Bragi Bragason.ER ÞETTA EKKI RUGL
-
Sveinn Ingi LýðssonPíslarvætti?
-
Ingibjörg MagnúsdóttirBravó fyrir hústökufólkinu! Framlenging á
-
Bjartmar Oddur Þ AlexanderssonGott framtak!
-
Halldór SigurðssonNokkrir á Vatnstíg í dag - myndir
-
Ásgrímur HartmannssonÞað er líf og fjör í borginni
-
Einar KarlNöfn hústökumanna
-
Einar Sveinn RagnarssonSkil bara ekkert í þeim!
-
Viðar IngvasonHús loks komið í hendur réttmætra eigenda.
-
Einar GuðjónssonHúsið hefur fengið hirði
-
RaggaHúsið okkar
Hústökufólk í miðborginni hlóð virki í dag fyrir utan Vatnsstíg 4. þar sem hópurinn hefur hafst við að undanförnu og vill koma upp félagsheimili. Eigendur gáfu fólkinu frest til að yfirgefa húsið fyrir fjögur og sögðust að öðrum kosti láta lögreglu rýma það.
Fókið sótt innanstokksmuni í nærliggjandi hús til að nota í virki en þau hús standa einnig auð og eru í hálfgerðri vanhirðu. Þá negldu það slagbrand fyrir bakdyrnar.
Þau segjast hafa tekið til í húsinu og gert þar fínt til að skapa félagslegt rými, meðal annars er þar búð þar sem allt er ókeypis, lítið bókasafn og sameiginlegt eldhús. Fyrirhugað er að bjóða fólki sem þarf ýmsa aðra þjónustu.
Talsverður hópur fólks stendur vörð um húsið en ekkert bólar á lögreglunni.
Til baka








Senda inn efni

