Þáðu háa styrki frá Baugi og FL Group, segir Stöð 2
Bloggað um fréttina
-
Benedikta EFréttatími stöðvar 2 í gærkvöldi - á botni
-
Aðalheiður ÁmundadóttirMér var hafnað
-
GrefillPólitíkus óskar eftir styrkveitingu ...
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirVér mótmælum öll
-
Rakel SigurgeirsdóttirLíður að kosningum...
-
Stefán Friðrik StefánssonStjórnmálamenn verða að leggja allt á borðið
-
Emil Örn KristjánssonFjölmiðlaspilling
-
Gísli TryggvasonHagsmunir neytenda krefjast rannsóknar
-
Einhver ÁgústÓtrúlega erfið málsvörn
-
Smári Jökull JónssonAlgjörlega nauðsynlegt
-
Einar Vignir EinarssonÞað hefur lengi verið minn grunur að....
-
Þórður Víkingur FriðgeirssonGera hreint fyrir dyrum
-
Gylfi BjörgvinssonKosningabarátta á lægsta plani
-
Ólafur JóhannssonEðlileg viðskipti?
-
Friðrik Hansen GuðmundssonAð bera fé á stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka.
-
Ólína ÞorvarðardóttirSannleikann fram í dagsljósið
-
Sigurður JónssonStöð 2. Spilin á borðið varðandi styrki og
-
Sigurður Ingi KjartanssonEkki láta blekkjast
-
Sigurbjörn SveinssonTveir Jónar
-
Axel Þór KolbeinssonÆtlar þú að kjósa einhvern þessara flokka?
-
Finnur BárðarsonAllt fram í dagsljósið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir''Litla hryllingsbúðin - Ísland''
-
Baldvin BjörgvinssonMútur, spilling, hagsmunatengsl
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirEngar mútur til Frjálslynda flokksins
-
Þórkatla SnæbjörnsdóttirSiðferðiskennd í lágmarki, spilling í hámarki!
-
Ólafur GíslasonEn dómsvaldið?
-
Salvör Kristjana GissurardóttirLobbíismi á Íslandi
-
Jenný Anna BaldursdóttirSkýlaus krafa um upplýsingar
-
Þór JóhannessonMÚTUR MÚTUR MÚTUR MÚTUR MÚTUR MÚTUR
-
Páll VilhjálmssonReipi í boði Baugs
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson HjelmEðlilegt ekki satt
-
Gísli Foster HjartarsonHreint ótrúlegt....en kemur eitthvað orðið á
-
Ólafur RagnarssonMútur ???
Stórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group styrktu frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna árið 2006 um milljónir króna skv. heimildum fréttastofu Stöðvar 2. Einstakir frambjóðendur þáðu allt að 2 milljónir króna í styrk, að sögn stöðvarinnar. Þrír Sjálfstæðismenn voru nefndir í þessu sambandi, tveir þingmenn Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Heimildir fréttastofu Stöðvar 2 herma að sjálfstæðismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir séu á meðal þeirra sem hlutu styrk frá áðurnefndum fyrirtækjum, einnig Samfylkingarþingmennirnir Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Stöð 2 sagðist einnig hafa heimildir fyrir því að margir stjórnmálamenn, jafnvel ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, aðilar tengdir þeim og forsvarsmenn lífeyrissjóða, hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu hjá gömlu viðskiptabönkunum fyrir bankahrunið í haust. Stöð 2 sagði að í sumum tilvikum hefði verið um að ræða tugmilljóna króna lán til þess að kaupa hlutabréf, meðal annars í bönkunum sjálfum, án þess að lögð væru fram nein veð.
Til baka








Senda inn efni



