Hundruð slógu skjaldborg um Helguvík
Bloggað um fréttina
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirKrefjið fjórflokkinn svara
-
Gerður PálmaÞið standið með báðum fótum á stærsta tekju
-
Einhver ÁgústEru börnin með álpappír í hárinu?
-
Þór JóhannessonTjaldborg sleginn um það sem ekki er til - Tál um
-
Lárus VilhjálmssonBlekkingaleikur um Helguvík
-
Sigurður Ingi JóhannssonStefna og stefnuleysi
-
Ásgeir Kristinn LárussonÁl, ál, ál og aftur ál...
-
Ægir Óskar HallgrímssonVG vildi þetta ekki.
-
Torfi Kristján StefánssonBrandari
-
Óðinn ÞórissonSkýr skilaboð
Hundruð Suðurnesjamanna slógu í dag skjaldborg um álverið í Helguvík. Með gjörningnum vildu þeir tryggja að ekkert stöðvi þúsundir atvinnutækifæra á svæðinu.
Hópurinn samanstóð af fólki sem lætur sig byggingu álvers varða.Hópurinn vildi minna á að þrátt fyrir að fjárfestingarsamningur um álverið hafi verið afgreiddur á Alþingi eru ennþá brýn mál sem þarf samstöðu um í ríkisstjórninni. Í tilkynningu segir að enn sé hætta á að stjórnmálamenn nái að stöðva álversframkvæmdirnar með ósætti vegna afgreiðslu umhverfisþátta og hafnarframkvæmda.
Tæplega tvö þúsund manns eru nú á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum en þar er atvinnuleysi nú hlutfallslega mest á landinu.
Í tilkynningu hópsins segir að ljóst sé að mikil ósamstaða sé á milli ríkistjórnarflokkanna um þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Helguvík. Miðað við 360 þúsund tonna álver skapist 1800 vel launuð störf sem séu lífsnauðsynleg fyrir Suðurnesin.
Til baka








Senda inn efni



