
mbl.is/Einar Falur
Vindorka er niðurgreidd
Bloggað um fréttina
-
Rúnar Birgir GíslasonÞað væri nú meira augnkonfektið
„Slík orka er ekki samkeppnishæf við hagkvæmustu kosti og því alltaf niðurgreidd kröftuglega með einum eða öðrum hætti,“ segir Þorkell Helgason, fyrrverandi orkumálastjóri, um hugsanlega vindorkuframleiðslu á Íslandi.
Virkjun vindorku er möguleiki sem Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra teflir fram sem valkosti við olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Í Morgunblaðinu í gær staðfesti hún andstöðu sína við olíuleitina og sagði nær að Íslendingar reyndu að virkja vindinn á hálendinu og meðfram ströndum landsins. „Kynni ekki að vera að það skapaði miklu fleiri atvinnutækifæri í landinu en olíuvinnsla?“ sagði Kolbrún. Flokkur hennar hefur hins vegar brugðist við yfirlýsingum Kolbrúnar með því að árétta að hann sé ekki mótfallinn olíuleitinni.
Vindorka á og við Ísland var kortlögð í tíð Þorkels sem orkumálastjóra, en þá var í samvinnu við Veðurstofuna búinn til vindatlas, kort af ætlaðri vindorku við landið. Vindorka er síst minni hér en í löndum sem þegar eru byrjuð að nýta hana, t.d. Danmörku, en aðstæður eru aðrar hér.
Ólík staða á Íslandi
„Græn orka er mjög mikið niðurgreidd í verði í Evrópu. Við erum í svolítið annarri stöðu hér á landi,“ segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri. Á meginlandinu bjóðist ekki aðrir hagkvæmari kostir í grænni orkuframleiðslu og því leggi þarlendir mikið fjármagn í hluti eins og vindmyllur, uppsetningu þeirra og þróun. Hér á landi sé hins vegar jarðvarmi og vatnsföll sem nýtist til orkuframleiðslu með mun meiri hagkvæmni.„Vindorkan keppir ekki í verði við þessar virkjanir sem við höfum verið að byggja, jarðvarma og vatnsorku. Það er ekki raunhæfur möguleiki á meðan sátt er um að virkja jarðvarma eða vatnsafl,“ segir Guðni. Sá tími komi samt á endanum, þegar Íslendingar þurfi að skoða þennan kost.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni

