[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Kjalarnes.

Kjalarnes. Loftmyndir

Innlent | mbl.is | 8.5.2009 | 16:01

Óveður á Kjalarnesi

Ófært er á Eyrarfjalli, Lágheiði, Hólasandi og á Öxi. Óveður er á Kjalarnesi. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Fróðárheiði. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er Eyrarfjall ófært. Snjóþekja og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og hálkublettir og éljagangur á Dynjandisheiði og Gemlufallsheiði. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Hálkublettir og skafrenningur er á Ennisháls. Þungfært er á veginum norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi er snjóþekja og éljagangur er á Þverárfjalli. Hálka og éljagangur er á Siglufjarðarvegi. Éljagangur er á Öxnadalsheiði. Ófært er á Lágheiði og snjóþekja, hálkublettir og éljagangur er í Eyjafirði.

Á Norðaustur- og Austurlandi er vetrarfærð. Snjóþekja og éljagangur er frá Víkurskarði og allt að Mývatnsheiði þar sem það er snjóþekja og skafrenningur. Ófært er á Hólasandi. Þæfingsfærð og stórhríð er á Mývatnsöræfum og þæfingsfærð og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum, á Vopnafjarðarheiði og á Sandvíkurheiði.

Á Vatnsskarði eystra er snjóþekja og skafrenningur. Þæfingsfærð og snjókoma er á Fjarðarheiði og snjóþekja á Fagradal. Hálkublettir og skafrenningur eru á Oddskarði. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Breiðdalsheiði og ófært er á Öxi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars