Vinna hafin við smíði dansk-íslensks aldamótaþorps á Eyrarbakka
Framkvæmdir eru hafnar við smíði aldamótaþorps á Eyrarbakka. Stefnt er að því að opna fyrsta áfanga þorpsins 11. maí næsta vor og annan áfanga ári síðar.
Anna S. Árnadóttir, framkvæmdastjóri Gónhóls á Eyrarbakka, sagði að fjölskylda sín hefði unnið að þessu verkefni. Faðir hennar, Árni Valdimarsson, keypti gamalt frystihús á Eyrarbakka 2006 og síðan hafa þau byggt þar upp rekstur. Þar eru nú kaffihúsið Gónhóll, íbúðir fyrir ferðamenn, nytja- og handverksmarkaður Gónhóls þar sem m.a. er selt kjöt og grænmeti beint frá býli, fornbílasafn, listasmiðja barnanna, Lista- og tungumálamiðstöðin HUX. Aldamótaþorpið verður byggt í um 1.100 m2 rými í gamla frystihúsinu.
Leikmyndahönnuðirnir Finnur Arnar og Þórarinn Blöndal hafa gert líkan af aldamótaþorpinu. Samráð verður haft við safnið Den Gamle By í Árósum í Danmörku og munu fulltrúar þess koma hingað.
„Danir eiga heilmikla sögu á Íslandi, bæði á Eyrarbakka og víðar,“ sagði Anna. „Við erum að byggja dansk-íslenskt þorp. Við verðum með verslanir og sýnum iðngreinar sem stundaðar voru á Eyrarbakka í byrjun 20. aldar þegar blómatími Eyrarbakka stóð sem hæst.“
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni




