Börðust við eld í Heiðmörk
Bloggað um fréttina
-
AlexanderWhat's wrong with people?
-
Brosveitan - Pétur ReynissonHvað er þetta, má maðurinn ekki grilla án þess að
-
Reynir JóhannessonReiðhjólamenn með slökkvitæki
-
Ómar RagnarssonKveikjum eld, kátt hann brennur!
-
Sigurveig EysteinsdóttirÞað á að hafa upp á þessu fólki
-
Halldór SigurðssonÞó að gott sé veður - myndir og myndband
-
Dögg PálsdóttirVítavert kæruleysi
-
Þórarinn Þ GíslasonSINUELDAR Á ÞESSUM TÍMA ERU GRAFALVARLEGIR HLUTIR
-
Ólafur Arnar GunnarssonKæruleysi eða bara heimska?
-
Ingunn GuðnadóttirÍ alvöru talað
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barðist nú undir kvöld í um einn og hálfan klukkutíma við gróðureld, sem kviknaði í Vífilsstaðahlíð í Heiðmörk. Þar hafði fólk verið að elda á einnota kolagrilli og virðist hafa skilið það eftir með þeim afleiðingum að eldur barst í sinu og um 400 fermetrar af gróðri brunnu.
Hópur manna, sem var í svonefndu fjallabruni á reiðhjólum, sá reyk stíga upp frá svæðinu. Þeir könnuðu málið, sáu eldinn og reyndu að slökkva hann. Einn þeirra, Eggert Ingólfsson, sagði að þeir hefðu reynt að hella vatni og gosi á eldinn og sprautað úr slökkvitæki, sem einn hafði meðferðis en ekkert gekk. Vegfarandi hringdi þá á slökkviliðið sem kom af vörmu spori.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu voru sendir tveir bílar á staðinn, dælubíll og tankbíll. Talsverðan tíma tók að slökkva eldinn enda er sinan þurr og nokkur vindur var.
Til baka








Senda inn efni




