Ögmundur mun hitta Dalai Lama
Bloggað um fréttina
-
Birgitta JónsdóttirEngin bréf til þinghóps xo
-
Óttarr GuðlaugssonEr Ögmundur orðinn sterkasti hlekkurinn?
-
Halldór JóhannssonOg..
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, mun á morgun sitja fund með Dalai Lama að því er kom fram í fréttum Stöðvar 2. Þá sóttu Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, friðarstund í Hallgrímskirkju í dag, sem Dalai Lama tók þátt í, að því er kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.
Dalai Lama mun einnig heimsækja Alþingi klukkan 13 á morgun. Mun Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, taka á móti honum og eiga með honum fund ásamt þingmönnum í utanríkismálanefnd.
Talsmaður samtakanna Dalai Lama á Íslandi sagði í fréttum Ríkisútvarpsins, að samtökin hefðu sent forsætisráðherra bréf með ósk um fund til að kynna heimsókn Dalai Lama hingað. Ekkert svar hefði borist. Þá hefði öllum þingmönnum einnig verið sent bréf um heimsóknina.
Til baka








Senda inn efni



