Gullverðlaun til Gradualekórsins

Mikil gleði ríkir meðal stúlkanna í Gradualekór Langholtskirkju með gull- …
Mikil gleði ríkir meðal stúlkanna í Gradualekór Langholtskirkju með gull- og silfurverðlaunin.

Gradualekór Langholtskirkju vann til gullverðlauna í kórakeppninni Festival of songs sem haldinn er í bænum Olomouc í Tékklandi, en úrslit keppninnar voru kunngerð fyrir stundu. Í keppninni tóku þátt 117 kórar frá 12 löndum, yfir 3500 söngvarar.

Í fréttatilkynningu frá kórnum segir að Gradualekór Langholtskirkju hafi fengið 96 stig af 100 í flokki kirkjutónlistar og vann þar með til gullverðlauna. Að auki fékk hann silfurverðlaun í flokki yfirburðaæskukóra með 88 stig af 100.

„Mikil lífsgleði hefur einkennt ferð Gradualekórsins og mikil gleði ríkir nú meðal stúlknanna í Gradualekór Langholtskirkju og Jóns Stefánssonar kórstjóra í Langholtskirkju en kórinn hefur æft stíft undanfarna mánuði og eru þau nú alsæl með frábæran árangur," segir í tilkynningunni.

Kórinn hefur verið í Tékklandi í viku og eyddi fyrstu dögunum í Prag þar sem hann söng á tónleikum og í messu í Salvator dómkirkjunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert