Nýtt flensutilfelli á Íslandi

Flest flensutilfellin hafa komið upp í Bandaríkjunum.
Flest flensutilfellin hafa komið upp í Bandaríkjunum. Reuters

Sextugur karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með inflúensu A (H1N1) og er það annað tilfelli veikinnar sem staðfest er hér á landi. Maðurinn er á batavegi samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnarlækni.

Fylgst er með fjölskyldu mannsins og fleirum sem hann hefur umgengist eftir heimkomuna en smit hjá öðrum hefur ekki verið staðfest.

Maðurinn kom til Íslands frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn en veiktist eftir að heim var komið og því ekki talið að hann hafi smitað aðra á leið sinni til Íslands. Í framhaldinu var tekið sýni til rannsóknar sem staðfesti greininguna. 

Fyrsta flensutilfellið, sem greindist hér á landi, var staðfest 22. maí og þar átti líka í hlut karlmaður sem var að koma frá Bandaríkjunum.

Viðbúnaður hérlendis vegna inflúensufaraldurs er óbreyttur og áfram er unnið að samhæfingu viðbragðsaðila þar að lútandi, meðal annars með svæðisáætlunum sem ræddar eru þessa dagana um allt land á fundum á vegum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Að sögn sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins hafa yfir 26.000 tilfelli inflúensunnar greinst  í heiminum, þar af hátt í tólf hundruð í ríkjum ESB og EFTA. Inflúensan hefur dregið 139 manns til dauða, þar af 106 í Mexíkó og 27 í Bandaríkjunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert