[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  28.8.2010
21 25 31 35 38 11
Jóker
9 2 0 7 0  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Melabraut, 170 Seltjarnarnes Melabraut Seltjarnarnes
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Bólstaðarhlíð, 105 Reykjavík Bólstaðarhlíð Reykjavík
Rangársel, 109 Reykjavík Rangársel Reykjavík
Litlikriki, 270 Mosfellsbær Litlikriki Mosfellsbær
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Æsufell, 111 Reykjavík Æsufell Reykjavík
Vesturberg, 111 Reykjavík Vesturberg Reykjavík
Steinasel, 109 Reykjavík Steinasel Reykjavík
Skúlagata, 101 Reykjavík Skúlagata Reykjavík
Dagur B. Eggertsson.

Dagur B. Eggertsson. mbl.is/Ómar

Innlent | mbl.is | 11.6.2009 | 09:53

Stýrihópur um eflingu atvinnulífs

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað Dag B. Eggertsson borgarfulltrúa formann stýrihóps verkefnisins um sóknaráætlun fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífgæða til framtíðar. Gerð þeirrar áætlunar og mótun nýrrar atvinnustefnu eru meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar. Aðrir í stýrihópnum eru Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík.

Eitt meginmarkmið þessarar vinnu er að móta áherslur sem tryggja að Ísland verði eitt af 10 samkeppnishæfustu löndum heims árið 2020.

Stýrihópnum er ætlað að hafa forgöngu um að lagt verði heildstætt mat á styrkleika Íslands og tækifærum og hvernig sækja megi fram, ekki síst á sviði atvinnumála. Með matinu næst yfirsýn yfir áætlanir sem heyra undir ólík ráðuneyti auk þess sem greint verður hvernig þær geti spilað saman. Jafnframt verði gerðar sérstakar sóknaráætlanir fyrir hvern landshluta fyrir sig til eflingar atvinnulífs og lífsgæða. Þær verða unnar í samráði við íbúa, sveitarfélög, hagsmunaaðila, grasrótarhreyfingar og sérfræðinga.

Stýrihópurinn hefur þegar hafið störf og hann mun efna til viðtæks samráðs til að kalla fram sameiginlega framtíðarsýn sem sóknaráætlunin verður byggð á. Til að ná markmiðum hennar verði náð er ætlunin að samþættar verði áætlanir í samgöngumálum, fjarskiptamálum, ferðamálum og byggðaáætlanir auk áætlana um eflingu sveitarstjórnarstigsins og ýmsa vaxtarsamninga og aðra opinbera stefnumótun og framkvæmdaáætlanir sem ætla má að komi til endurskoðunar í kjölfar efnahagshrunsins.

Stýrihópnum er ætlað að setja fram verkefnisáætlun og gert er ráð fyrir að þær áætlanir sem lagðar verði fram á Alþingi frá og með vetri komandi taki mið af verkefninu.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær