
Laugavegur í Reykjavík.
Laugavegurinn verði göngugata í góðu veðri
Bloggað um fréttina
-
Elín SigurðardóttirFrábær hugmynd
-
Morten LangeFrábær hugmynd. Hefur svinvirkað erlendis.
-
FrjálshyggjufélagiðVersluninni rústað
-
Guðmundur B. Ingvarssonog kominn tími til...
-
Jakob Falur KristinssonLaugavegur
-
Jón SnæbjörnssonLaugarvegur fólksvangur (verzlunarfólksvangur)
Hjá Reykjavíkurborg eru nú uppi hugmyndir um að loka Laugaveginum fyrir umferð farartækja og gera hann að göngugötu þegar vel viðrar í sumar. Í skoðun er að strætó fari upp og niður Hverfisgötuna þá daga sem gatan er lokuð bílum.
Á fundi Umhverfis- og samgöngusviðs í síðustu viku var samþykkt að leita samstarfs við verslunareigendur við Laugaveg um að loka götunni fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum. Er ætlunin að þetta sé í tilraunaskyni og árangur metinn síðar.
Þá vill sviðið kanna möguleikann á sérstökum góðviðrisstrætó sem gangi upp og niður Hverfisgötuna á meðan á lokun stendur. Þannig sé komið til móts við þá sem eiga erfitt með að ferðast gangandi.
Umhverfis og samgöngusvið mun vinna tillöguna í samráði við Menningar- og ferðamálasvið, sem og kaupmenn á svæðinu.
Til baka








Senda inn efni

