Enginn sýnt fram á að samningurinn stofni Íslandi í hættu
Bloggað um fréttina
-
Hrannar Björn ArnarssonLánshæfismati Íslands bjargað ?
-
Andri Geir ArinbjarnarsonMr. Bean
-
Þórkatla SnæbjörnsdóttirIcesaveklúður og Icesavefangelsi. Fjölskyldur,
-
Þórarinn Þ GíslasonNEI,STEINGRÍMUR MINN.HVER HELDUR ÞÚ AÐ SJÁI FRAM Í
-
Rakel SigurgeirsdóttirÞað er bara ekki satt!!
-
Ágúst Már GarðarssonSteinarnir rúlla niður hlíðina, það gerir
-
VaktinÞað er ekki leyfilegt samkvæmt tilskipun ESB að
-
KolbeinsNei ein mitt..
-
Friðrik Hansen GuðmundssonMun ekkert fást upp í Icesave úr þrotabúi
-
Þorsteinn Helgi SteinarssonÖfugmæli og seintekinn lærdómur
-
Jón Valur JenssonFalsræður Steingríms J. um Icesave-samninginn
-
Guðmundur ÁsgeirssonSteingrímur lýgur eða orðinn vitlaus!
-
Vignir BjarnasonSteingrímur, hvers vegna eru uppsagnarákvæði í
-
Rúnar Már BragasonHefur eitthver sýnt fram á að hann geri það ekki?
-
Sigurlaug Guðrún Inga GísladóttirÆi Steingrímur þú ert svo mikill ......
-
Guðrún María Óskarsdóttir.Við borgum ekki skuldir óreiðumanna í útlöndum
-
TollinnHeimskuleg rök
-
Þórhildur Helga ÞorleifsdóttirEf ég treysti einhverjum....
-
Karl Gauti HjaltasonMeð hendina í ljónskjafti !
-
Benedikta EÞað er hvorugt öðru skárra - Jóhanna eða
-
Gunnar GunnarssonDetti mér nú allar ...
-
Jóhannes H. Laxdalþetta minnir mig svoldið á Yes Minister þættina
-
Högni Jóhann SigurjónssonHver er..................
-
Tómas Ibsen HalldórssonEnginn hefur sýnt fram á...
-
Dögg PálsdóttirEn getur fjármálaráðherra
-
Jóhann ElíassonHann hlýtur að vera á einhverju MJÖG sterku!!!!!!!
-
Steini VLeyndarmál??
-
Sólveig Þóra JónsdóttirEkki það nei
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirTrúverðugleiki á þrotum
-
Einar Þór StrandSteingrímur og Árni það eruð þið sem eigið að sýna
-
Bjarni Benedikt GunnarssonVinir í raun!
-
Hjörtur J. GuðmundssonÞað sem skiptir meira máli
-
Magnús Helgi BjörgvinssonAuglýsi eftir dæmum um að annað ríki hafi gert
-
Ómar GeirssonRétt hjá Steingrími.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi að enginn hafi getað sýnt fram á það með neinum rökum, að ákvæði Icesave-samninganna stofni í hættu stöðu Íslendinga, eignum og auðlindum innanlands.
„Slíkt gæti aðeins gerst handan þess, að öryggisákvæði samningsins hefðu ekki náð að leysa vandamálin, handan þess að dómsmál hefði tapast erlendis og handan þess, að íslenska ríkið væri komið á hliðina og nánast liðið undir lok sem réttarríki," sagði Steingrímur. „Slíkt geymir sagan engin dæmi um."
Hann sagði að ákvæðin í samningunum væru algerlega hliðstæð ákvæðum, sem verði væntanlega í lánasamningum við hin Norðurlöndin. „Halda menn að frændþjóðir okkar á Norðurlöndum fari að setja slík ákvæði inn í samning til að geta með krókaleiðum ásælst auðlindir Íslendinga? Nei, þetta er af lagatæknilegum og samningatæknilegum ástæðum," sagði Steingrímur.
Upplýsingagjöf hefði getað verið betri
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagði í umræðunum, að allt væri málið þannig vaxið, að það sýni hvernig menn þurfi að læra að vinna í Nýja Íslandi. „Við sjáum að þróun undanfarinna vikna, að við hefðum getað hagað upplýsingagjöf með öðrum hætti. Nú er mikilvægt, að við veltum við hverjum steini og róum fyrir hverja vík til að kanna þetta mál til hlítar," sagði Árni Páll.
Hann sagði nauðsynlegt að fjallað verði ýtarlega um málið í þingnefnd og kalla þurfi til sérfræðinga til að fjalla um lánakjör og samningsákvæði til að eyða áhyggjum og greiða úr misskilningi. Helst þurfi umfjöllunin að fara fram fyrir opnum tjöldum. „Ég held að flestum áhyggjum varðandi þennan samning verði svarað með vandaðri umfjöllun í nefnd," sagði Árni Páll.
|
|
Samningurinn við Bretland |
|
|
Samningurinn við Holland |
Til baka








Senda inn efni


