
Skattur á kex og gos í 24,5%
Bloggað um fréttina
-
Jón Halldór GuðmundssonFólskuleg árás!
-
Benedikt HalldórssonKexrugluð skattheimta
-
Sigurður JónssonTilkynnning frá Vinstri stjórninni: Þetta megið
-
Ómar Ragnarsson"Það sem er gott er óhollt..."?
-
Guðjón GuðvarðarsonÞá er að hækka strax!
-
Baldur SigurðarsonLoksins eitthvað af viti.
-
Grétar Mar JónssonSkattur á neysluvöru.
-
Sigurður SveinssonUmskiptingurinn Steingrímur J.
-
Einhver ÁgústNamminamm
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirÉg óska ríkisstjórninni til hamingju
-
Jón Ingi CæsarssonSkilar ekki auknum tekjum í ríkissjóð.
-
Arnar Bergur GuðjónssonTil að vernda börn fyrir sykurneyslu eða ???
-
Albert Guðmann JónssonJaháá..
-
MarilynOk skítt með sykurskattinn en...
-
Ásgrímur HartmannssonMeinlætalíf með vinstri-grænum
-
Björn FinnbogasonTil hamingju með þetta öll Íslands börn!
-
Inga Jessenvúhúúú....
-
Sigurður Ingi KjartanssonLýðskrum
-
FrjálshyggjufélagiðBlautur draumur vinstrimanna
-
Rúnar Már BragasonEn hvað um niðurskurð?
-
Þórkatla SnæbjörnsdóttirEkki vildi ég vera Jóhanna Sig. á dvalarheimili
-
Magnús H TraustasonSykurbindindi.
-
Björgvin PInn með gröfurnar....
-
Páll BlöndalHrói höttur bankanna
-
I IGat ríkisstjórnin ekki verið um borð í AF-447
-
Magnús SigurðssonÞetta eru asnar Guðjón.
-
Dögg PálsdóttirOg neysluvísitalan hækkar
-
Einar GuðjónssonÍ skjóli nætur
-
Martha Elena LaxdalEn ef allir hætta að kaupa...........
-
Einar Þór StrandSteingrímur hvað með vísitöluna??????
Virðisaukaskattur af matvörum á borð við sælgæti, súkkulaði, gos, kolsýrt vatn, ávaxtasafa og kex fer úr 7% í 24,5% þann 1. september á þessu ári, samkvæmt stjórnarfrumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem lagt var fram á Alþingi í kvöld.
Um er að ræða sömu vöruflokka og voru í efra þrepi virðisaukaskatts fyrir 1. mars 2007 að viðbættum sykurvörum af ýmsum toga.
Áætlað er að þessi breyting hafi í för með sér að tekjur ríkissjóðs aukist um 2,5 milljarða króna á ári en á þessu ári verði tekjuaukinn um 0,7 milljarðar króna. Áætlað er að þetta muni hækka vísitölu neysluverðs um 0,25% að sögn fjármálaráðuneytisins.
Fyrir 1. mars 2007 voru flestar matvörur í 14% skattþrepi virðisaukaskatts en það þrep lækkaði í 7%. Nokkrir vöruflokkar báru hins vegar 24,5% skatt en þeir lækkuðu einnig í 7%. Þeirri breytingu verður nú snúið við.
Alls er gert ráð fyrir, að þær ráðstafanir, sem kveðið er á um í frumvarpinu, skili ríkinu bættri afkomu á þessu ári upp á 22.360 milljónir króna og 63.363 milljarða á næsta ári.
Til baka








Senda inn efni

