Varnarmálastofnun lögð niður
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur AuðunssonHið besta mál...
-
Guðmundur Jónas KristjánssonVinstristjórnin ráðvillt í öryggis- og
-
Jóhann ElíassonTil hvers var verið að setja þessa stofnun á fót??
-
Jón Valur JenssonÞví verður ekki neitað, að það er hinn mesti galli
Framlög til Varnarmálastofnunar verða skorin niður en ætlunin er að leggja stofnunina niður í núverandi mynd. Utanríkisráðuneytið segir, að niðurskurðurinn muni ekki bitna á varnar- og öryggisskuldbindingum Íslendinga.
Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt, að rekstrarútgjöld verði á næsta ári skorin niður um 10% til viðbótar áður ákveðnum sparnaði. Þá muni ráðuneytið spara 190 milljónir króna á þessu ári umfram það sem áður var boðað.
Segir ráðuneytið, að nálægt 3/4 hlutar útgjalda utanríksráðuneytisins séu í erlendri mynt og sé ráðuneytið því viðkvæmara fyrir áhrifum gengisbreytinga en annar rekstur hins opinbera.
Verulega verða dregin saman framlög til þróunarsamvinnu og friðargæslu á meðan Íslendingar ganga í gegnum efnahagslegar þrengingar en aukið verður við að nýju, að sögn ráðuneytisins, þegar efnahagslífið verður komið á réttan kjöl.
Til baka








Senda inn efni


