

Reykjanesbær. www.mats.is
Handtekinn fyrir illa meðferð á hundi
Bloggað um fréttina
-
Gunnar GunnarssonOpinber rassskelling
-
Jóhanna ThorsteinsonÓfyrirgefanlegt !
-
Þórarinn Þ GíslasonHRYLLILEG MEÐFERÐ Á DÝRUM HÉR Á LANDI ALLT OF
-
Anna AndulkaLokið þennan mann inni í bílskúr...
-
Jón Baldur LorangeHandtekinn fyrir illa meðferð á þjóð? - Spilavíti
-
Jóhannes RagnarssonÞegar Snati ýtti húsbónda sínum fyrir björg
-
Þórður Víkingur FriðgeirssonPínulítill kall
-
Benedikta EÞað vantar mikið upp á að allir sem hafa
-
Brosveitan - Pétur Reynisson"Mannhundur" og "skaphundur" kannski rétt lýsing..
-
Guðrún Olga ClausenNíðingur
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirHandtekinn fyrir illa meðferð á tveim löggum
-
SólaBesti vinur mannsins
-
Pétur ÁsbjörnssonAthyglisvert og réttindalausir hundaeigendur
-
Aðalsteinn BaldurssonFáránleg fyrirsögn.
-
Axel Jóhann HallgrímssonAuga fyrir auga og.....
-
Ragnheiðurömurleg frétt !
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í dag karlmann, sem réðist á lögreglumenn eftir að þeir fjarlægðu hund, sem sætt hafði illri meðferð hjá manninum.
Lögreglumenn fóru í morgun inn í bílskúr í Reykjanesbæ til að fjarlægja hundinn. Eigandinn hafði farið í tjaldútilegu deginum áður og skilið hundinn eftir.
Við lögreglumönnunum blöstu ömurlegar aðstæður. Ekkert fóður eða vatn var hjá hundinum og hland og saur á gólfinu. Fengust þær upplýsingar að hundurinn væri alltaf hafður í bílskúrnum og honum væri lítið sem ekkert sinnt. Hundurinn var tekinn í vörslu lögreglunnar og mun embætti héraðsdýralæknis og Umhverfisstofnun fá málið til skoðunar.
Eigandi hundsins kom svo heim síðdegis í dag og hafði samband við lögreglu þar sem hann var verulega ósáttur við að hundurinn skyldi vera fjarlægður. Lögreglan segir, að reynt hafi verið að útskýra málið fyrir manninum en hann brást illur við og réðist á lögreglumann. Þurfti því að handtaka manninn og meiddust tveir lögreglumenn í átökum við hann og þurftu að leita læknisaðstoðar.
Maðurinn gistir nú í fangageymslu og bíður yfirheyrslu.
Til baka








Senda inn efni
