Djarfur hrekkjalómur á Djúpavogi
Bloggað um fréttina
-
TryggvienatorHvernig væri nú...
-
Guðjón Þór ÞórarinssonÞetta er nú ekki hrekkur.
-
Sigurður M GrétarssonAf hverju labbaði hann ekki bara í vinnuna?
-
GrefillBest að nota útilokunaraðferðina á þetta ...
-
Aðalsteinn BaldurssonEigandinn.
-
Þórhallur PálssonStolin hugmynd
-
Asdis SigAuðvitað eigandinn sjálfur, athyglissjúkur, eða
Fréttavefurinn Djúpivogur.is greinir frá því að þann 22. júní hafi orðið undarlegur atburður í bænum. Þannig var að þegar íbúi nokkur í Borgarlandi ætlaði að setjast inn í bílinn sinn að morgni til sá hann sér til mikillar undrunar að það var búið að pakka bílnum inn í filmuumbúðir.
Eftir harðvítuga baráttu við plastið með skærum og hnífabrögðum komst eigandinn inn í bílinn, þá orðin allt of seinn til vinnu.
Nú spyrja íbúar í Borgarlandinu sig hvaða hrekkjalómur hefur verið á ferð með plastfilmu þessa og sömuleiðis spyrja menn sig hvort hann muni láta til skarar skríða aftur.
Nú hefur hrekkjalómurinn gerst svo djarfur að setja myndband af atburðinum inn á Youtube. Hér má sjá myndbandið á vef Djúpavogs.
Óskar vefurinn jafnframt eftir ábendingum um það hver hrekkjalómurinn dularfulli geti verið.
Til baka








Senda inn efni



