Óseldar 4.400 íbúðir
Bloggað um fréttina
-
Haraldur HaraldssonÓseldar 4.400 íbúðir///þetta mun lækka Íbuðarverð
-
Guðrún María Óskarsdóttir.HVAÐA sveitarfélög létu byggja 4.400, óseldar
-
TryggvienatorRífum niður Breiðholtið.
-
Gísli Foster Hjartarson2011!!!!...þá bíð ég bara!!!
Fjárfesting í íbúðarhúsnæði dróst saman um tæpan fjórðung í fyrra en þá hafði íbúðafjárfesting ekki dregist saman á milli ára síðan 1997. Áframhaldandi mikill samdráttur er framundan í byggingariðnaði.
Í uppsveiflu undanfarinna ára var íbúðafjárfesting langt umfram þörf markaðarins og framboðið á nýju íbúðarhúsnæði því umtalsvert. Áætlað er að birgðir óseldra íbúða séu nú um 4.400 íbúðir og hafa þær ríflega tvöfaldast frá því að best lét á fasteignamarkaði á haustmánuðum 2007. Þessu til viðbótar eru vextir háir, ráðstöfunartekjur fara lækkandi og óvissa er mikil i efnahagslífinu, sem allt eru þættir sem draga úr eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði.
Samspil mikils framboðs og minnkandi eftirspurnar endurspeglast í verðþróun íbúðarhúsnæðis, en íbúðaverð hefur lækkað um tæplega 13% að nafnverði frá því það náði hámarki haustið 2007 eða um tæp 28% að raunvirði.
Raunverð fasteigna lækki um 40%
„Íbúðaverð mun áfram lækka á næstu misserum og spáir hagdeildin því að raunverð íbúðahúsnæðis lækki um tæp 40% frá því sem það var hæst árið 2007 og þar til það lágmarkinu verður náð í upphafi árs 2011.
Við gerum ráð fyrir því að fjárfestingar í nýju íbúðarhúsnæði dragist saman um tæpan helming á þessu ári og enn um tæp 11% á næsta ári. Árið 2011 aukast íbúðafjárfestingar á ný og vaxa þá um tæp 8% en útlit er fyrir lítilsháttar samdrátt á árinu 2012."
Til baka








Senda inn efni



