Joly: Hvað á ríkissaksóknari að gera?
Bloggað um fréttina
-
Eva HauksdóttirNú hann hlýtur að eiga að sinna sömu bófum og
-
TollinnNei heyrðu mig nú
-
Jón Baldur LorangeRíkissaksóknari þarf endurmenntun - og - Eltum
-
Björn FinnbogasonHey Skvís! Þú áttir að eltast við ljótu kallana!!
-
Friðrik Dagur ArnarsonEins og oft áður hittir hún naglann á hausinn
-
Thorben Jósef LundÍsland 101
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara í málefnum tengdum bankahruninu, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í dag að hún vilji að ríkissaksóknari segi starfi sínu lausu.
Joly sagðist gera sér grein fyrir að ríkisstjórnin gæti ekki sett hann af og að rétt væri að embættið væri þannig verndað gegn því að stjórnmálamenn ráðskist með það. Ríkissaksóknari, sem sé óhæfur í málum sem tengjast bankahruninu, valdi hins vegar þjóðfélaginu óþarfa útgjöldum og því skori hún á hann að segja af sér.
Spurði hún einnig hvað hann ætti að gera á skrifstofu sinni þar sem hann væri vanhæfur í þeim málum sem munu taka mestan kraft ákæruvaldsins á næstu árum og hvort hann ætti einungis að fást við smámál.
Joly sagði fyrr á árinu að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari væri vanhæfur vegna þess að sonur hans er annar forstjóra Exista.
Til baka








Senda inn efni



