[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Tröllakór, 203 Kópavogur Tröllakór Kópavogur

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 11.7.2009 | 08:08

Fuglahandrit Benedikts Gröndals gefið út að ári

Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is

„Þegar ég fékk að sjá handritið, þá spurði ég: Af hverju veit enginn af þessu?“ segir Kristján B. Jónasson, en útgáfufyrirtæki hans, Crymogea, og Náttúrufræðistofnun Íslands undirrituðu í gær samkomulag um að gefa út á bók fullbúið handrit Benedikts Gröndals skálds, Fuglar Íslands, sem skáldið vann að á síðustu árum 19. aldar.

Í handritinu, sem er fullfrágengið af Benedikts hálfu, eru eftir hann, af öllum varpfuglategundum landsins sem þá voru kunnar auk mynda af flækingsfuglum og af eggjum í raunstærð.

„Það hefur aldrei verið rituð ævisaga Benedikts, en það er til ágætis æviágrip eftir Gils Guðmundsson. Þar er minnst á það í einni setningu að Benedikt hafi verið duglegur að teikna og skilið eftir sig nokkur handrit með teikningum.“

Handrit Benedikts hefur verið varðveitt óhreyft hjá Náttúrufræðistofnun. Það hefur að geyma hundrað myndir af varpfuglum Íslands á þeim tíma, teiknaðar af Benedikt, og af flækingsfuglum. Textann skrautritaði skáldið af miklu listfengi.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars