Skýrslur teknar af starfsmönnum Valhallar

mbl.is

Rannsókn er hafin á upptökum brunans sem varð í gær í Hótel Valhöll á Þingvöllum. Lögreglan á Selfossi fer með rannsóknina og hafa skýrslur verið teknar af nokkrum starfsmönnum hótelsins. Lögregluvakt hefur verið á svæðinu og verður áfram í dag og á morgun.

Lögreglan á Selfossi beinir því til fólks sem fer til Þingvalla í dag og á morgun að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá brunarústunum, leggi það leið sína að þeim.

Hreinsunarstarf er hafið á brunastað en vettvangsrannsókn fer fram á mánudag. Rannsóknarlögreglumenn tæknideildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir til aðstoðar og komu þeir á brunavettvang strax í gær. Þeir munu vinna við frekari vettvangsrannsókn á mánudag.

Lítið stendur eftir af hótelbyggingunni og er óvíst á þessari stundu hvort eða hvernig verður byggt upp á Valhallarreitnum. Sigurður K. Oddsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, sagðist í samtali við mbl.is telja best að tyrfa yfir reit Hótel Valhallar og ganga snyrtilega frá hið fyrsta.

Fyrir liggur að margir aðilar hafa orðið fyrir tjóni í brunanum og þá mest húseigandi og rekstraraðili. Starfsmenn og gestir misstu persónulega muni sína. Þá skemmdist búnaður á vegum fyrirtækjanna Símans og Mílu, sem var á og við hótelið, í brunanum.

Lögreglan á Selfossi vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lögðu lið við slökkvistarfið sem og fjölmiðlafólki sem sýndi mikla tillitsemi og aðgát á brunavettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert