Á batavegi eftir flugslys

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Karlmaður sem slasaðist alvarlega í flugslysi þann 3. júlí sl. við Selá í Vopnafirði er á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er ekki lengur í lífshættu og var útskrifaður af gjörgæsludeild í gær en hann losnaði úr öndunarvél á föstudag. Dvelur hann nú á bæklunardeild.

Félagi mannsins lést í flugslysinu og er hann jarðsunginn í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert