[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 8.9.10
3 10 28 30 39 43
14 44   42
Jóker
1 4 9 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Sörlaskjól, 107 Reykjavík Sörlaskjól Reykjavík
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Stararimi, 112 Reykjavík Stararimi Reykjavík
Bauganes, 101 Reykjavík Bauganes Reykjavík
Logafold, 112 Reykjavík Logafold Reykjavík
Lindarflöt, 210 Garðabær Lindarflöt Garðabær
Reynimelur, 107 Reykjavík Reynimelur Reykjavík
Bæjarlind, 201 Kópavogur Bæjarlind Kópavogur
Básahraun, 680 Þórshöfn Básahraun Þórshöfn
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Róbert Ragnar Spanó er settur Umboðsmaður Alþingis.

Róbert Ragnar Spanó er settur Umboðsmaður Alþingis.

Innlent | mbl.is | 14.7.2009 | 12:17

Skylda til að kanna einelti

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að jákvæð og bein skylda geti hvílt á ráðherra að taka eineltismál á vinnustað til umfjöllunar. Ýmis kvörtunarmál hafa borist embætti Umboðsmanns Alþingis sem tengjast einelti á vinnustað og voru þau tilefni þess að Umboðsmaður ákvað að kanna að eigin frumkvæði hvort og hvaða skyldur hvíldu á ráðherra til að bregðast við slíkum tilvikum með raunhæfum og virkum hætti.

Umboðsmaður rakti ákvæði 2., 13. og 14. greinar stjórnarskrár og sagði að af þeim leiddi að ráðherrar færu með æðsta vald í stigskiptri stjórnsýslu og hefðu eftirlit og bæru ábyrgð á starfsemi ráðuneyta og þeirra stjórnvalda sem teldust lægra sett gagnvart ráðherra.

Umboðsmaður taldi að almennt væru þær skyldur sem ákvæði laga um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum og reglugerðar um einelti á vinnustöðum settu á atvinnurekanda á höndum forstöðumanns opinberrar stofnunar. Hins vegar yrði að huga nánar að sérstöðu hins opinbera. Benti umboðsmaður á að ráðuneyti gæti á grundvelli stjórnunarheimilda sinna tekið mál til umfjöllunar að eigin frumkvæði. Ráðuneytið hefði hins vegar ekki aðeins heimild til slíks heldur gæti einnig hvílt jákvæð athafnaskylda á því í ákveðnum tilvikum.

Þessi skylda byggðist á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda þegar fyrir lægi að mati ráðuneytis að þess hefði ekki verið gætt um nokkurn tíma í starfsemi undirstofnunar að haga innra skipulagi hennar og málsmeðferð, hvort sem væri inn á við gagnvart starfsmönnum stofnunar, eða út á við gagnvart borgurunum, með þeim hætti sem áskilið væri í lögum.

Umboðsmaður hafði jafnframt átt í bréfaskriftum við heilbrigðisráðuneytið þar sem ráðuneytið lýsti því yfir að það teldi ekki í hlutverkahring sínum að hafa  „bein afskipti“ af einstökum starfsmannamálum eða taka „beina afstöðu“ til ágreinings í slíkum málum. Ráðuneytið taldi þessa afstöðu sína fyllilega í samræmi við lög. Umboðsmaður var á öðru máli.

Nálgast má álitið hér

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær