Fleiri andvígir aðild að ESB og vilja þjóðaratkvæðagreiðslu
Bloggað um fréttina
-
Júlíus BjörnssonÓsamræmanlegur Samkeppnigrunnur
-
Guðrún María Óskarsdóttir.Tæp 70 % þjóðarinnar vildu fá að greiða atkvæði um
-
Guðmundur Jónas KristjánssonFréttastofa RÚV styður aðild Íslands að ESB !
-
Benedikta EValdið er hjá fólkinu ! Látum ekki hræðsluáróður
-
Ólafur EiríkssonÞægilegra að skoða niðurstöðuna myndrænt
-
Guðsteinn Haukur BarkarsonÞarf að segja meira?
-
Jón Valur JenssonGallup-könnun sýnir mjög eindregna andstöðu við
-
Guðmundur ÁsgeirssonMeirihluti Íslendinga á móti ESB aðild
-
Ólafur IngólfssonMarklaus skoðanakönnun
-
Haraldur HaraldssonFleiri andvígir aðild að ESB/ Þetta hlaut að koma
-
Ásgeir R. HelgasonBjört framtíð
-
Ómar Bjarki SmárasonVonandi gufar ESB umsóknin upp....
-
Sigurður ÞórðarsonVatnasl - Glansinn af ESB aðild orðinn mattur.
-
Ólafur Björn ÓlafssonNú hlakkar í mér....
-
Stefán Friðrik StefánssonAndstaða eykst við ESB-aðild
-
Unnur Brá KonráðsdóttirSkynsöm þjóð
-
Axel Þór KolbeinssonGrein Vefþjóðviljans.
-
Eyþór ArnaldsTakmarkað umboð
-
Magnús Helgi BjörgvinssonAf hverju er ekki spurt hreint út?!
Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB)en hlynntir samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Andríki.
Spurt var; Ert þú hlynnt/ur eða andvíg/ur inngöngu Íslands í Evrópusambandið? Varð niðurstaðan sú að „mjög hlynnt“ voru 17,1%, „frekar hlynnt“ 17,6%, „frekar andvíg“ voru 19,3% og „mjög andvíg“ 29,2%. „Hvorki né“ sögðust 16,9% vera.
Kemur fram að ef þeim, sem völdu svarið „hvorki né“, er sleppt úr niðurstöðunum, séu 58,3% frekar eða mjög andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið, en 41,7% frekar eða mjög hlynnt.
Í sömu könnun kemur fram að meirihluti þeirra sem taka afstöðu, vildu fá þjóðaratkvæðagreiðslu um þá ákvörðun að Íslandi sæki um aðild að ESB.
Lögð var fram spurningin: Ert þú hlynnt/ur eða andvíg/ur því að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu?
Var niðurstaðan sú að „mjög hlynnt“ voru 45,3%, „frekar hlynnt“ 15,6%, „frekar andvíg“ voru 11,3% og „mjög andvíg“ 17,9%. „Hvorki né“ svöruðu 9,9% þátttakenda.
Fram kemur að ef þeim sem völdu svarið „hvorki né“, er sleppt úr niðurstöðunni, vilji 67,6% aðspurðra fá þjóðaratkvæðagreiðslum um það hvort "Ísland eiga að sækja um aðild að Evrópusambandinu" en 32,4% eru ekki hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Könnunin var gerð dagana 16. til 27. júlí 2009 og voru 1273 í úrtakinu. Af þeim svöruðu 717 og svarhlutfall var því 56,3%.
Til baka








Senda inn efni