„Það er búið að semja!“
Bloggað um fréttina
-
Jón Baldur LorangeHver skipti um forrit í Steingrími J. Sigfússyni?
-
Esther Anna JóhannsdóttirUndirritun samninga lögbrot!
-
Sigurður ÞorsteinssonSkilaboð Steingríms eru algjörlega skýr
-
Þórkatla SnæbjörnsdóttirEr "samviska" og "stefnuskrá"
-
Stefán Friðrik StefánssonBretar gefa ekki eftir - samningur úr sögunni
-
Jóhann Elíasson"YESTERDAY'S NEWS"
-
Sigurður JónssonHvar er Jóhanna Sigurðardóttir ?
-
Lárus VilhjálmssonBerjum helvítin
-
Marinó G. NjálssonSamið var með fyrirvara um samþykki Alþingis
-
Bergur ThorbergHvatvísir Íslendingar
-
Magnús Helgi BjörgvinssonSpurning hvað menn koma með næst sem rök fyrir að
-
Benedikta EHroki Breta ótta blandinn - Verði RÍKISÁBYRGÐ
-
Ásta Hafberg S.Fellur kannski mjúklega til jarðar með fyrirvörum
-
Ævar Rafn KjartanssonDone deal....
-
Einar GuðjónssonSástu hvernig ég tók þá..
-
Friðrik Hansen GuðmundssonBretar ófyrirleitnir
-
Þórdís Bára HannesdóttirSteingrímur skýrði þetta vel í Kastljósinu í gær.
-
Þorsteinn SiglaugssonAuðvitað!
-
PúkinnSkyldulesning um Icesave
-
Axel Jóhann AxelssonAlþingi niðurlægt af Bretum, Hollendingum og ESB
-
Óðinn ÞórissonBretar og Icesave
-
Andri Geir ArinbjarnarsonVið hverja er verið að endursemja?
-
Birgitta JónsdóttirXO og Icesave
„Það er búið að semja um Icesave við Ísland,“ voru fyrstu viðbrögð talsmanns breska fjármálaráðuneytisins þegar Morgunblaðið innti eftir viðbrögðum vegna væntanlegra fyrirvara Alþingis við Icesave-samninginn. Hann segir bresku ríkisstjórnina skilja samskipti sín við íslensku ríkisstjórnina svo að sú síðarnefnda sé reiðubúin að afla stuðnings þingsins við samkomulagið um Icesave sem var undirritað 5. júní síðastliðinn. Það séu góð tíðindi fyrir bæði löndin að þetta mál verði nú leyst.
Lögfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við voru á einu máli. Miðað við almennar reglur samningaréttar jafngilda fyrirvarar við samning höfnun á samningi og nýju tilboði. Þótt ef til vill sé hægt að laga orðalag eða fínstilla tiltekna hluti þá þýða of víðtækir fyrirvarar almennt það að semja þarf upp á nýtt. Fyrirvarar eru þannig vægari eða kurteisari leið til að hafna samningi.
Aðstoðarmaður fjármálaráðherra segir marga þá fyrirvara sem hafa verið í umræðunni ekki rúmast innan þess samnings sem liggur fyrir.
Reyna að fá alla að borðinu
„Nú eru allir stjórnmálaflokkar að skoða möguleikana á því að koma sameiginlega að málinu,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra, spurður um málið í gær. „Það þarf að hlusta á sjónarmið allra aðila. Ég held að allir séu komnir á þá skoðun að samningurinn, eins og hann stendur hrár, gangi ekki upp, heldur þurfi að leita eftir samstöðu um skilmála og fyrirvara Alþingis um aðkomu að málinu og þetta eru menn að ræða.“Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins gera þingmenn í Vg sem ekki geta stutt málið óbreytt nú tilraun til þess að ná þverpólitísku samkomulagi um lausn þess með „skýrum og sterkum“ fyrirvörum. Hafa þeir sent skriflegar tillögur til allra flokka með það að markmiði að ná samstöðu á Alþingi um lausn.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni



