Kommar, íhald og guðsmenn
Bloggað um fréttina
-
Þorri Almennings Forni LoftskiGunnar skipti um ritningu
-
Kristinn Snævar JónssonÖfganna á milli er blindir fá sýn
-
Rakel SigurgeirsdóttirVið verðum að standa saman!
-
Emil Örn KristjánssonLélegt
-
Helga R. EinarsdóttirÁttu ekki þessir þingmenn að vera í vinnunni?
-
Þór JóhannessonGunnar fremstur meðal jafningja
-
Gísli Foster HjartarsonEkkert ad fretta?
-
Páll BlöndalJakkafatabyltingin
-
Njörður HelgasonSaman á hanapriki.
-
Erla Margrét GunnarsdóttirFlótti til frelsis
-
Asdis SigRembingur í sumum mótmælendum, mega ekki allir
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum studdist við Rauða kverið eftir Maó á sínum yngri árum en tók síðar ástfóstri við Biblíuna eins og allir vita. Hann tók þátt í mótmælum á Austurvelli í gær gegn Icesave-samningnum ásamt miklu fjölmenni fólks en fjölbreytilegri mótmælafundir eru eflaust vandfundnir.
Það eru ekki margir mótmælafundir þar sem Gunnar í Krossinum, Davíð Oddsson og frægustu róttæklingar bæjarins mótmæla saman. Mómtælendur komu úr öllum áttum að þessu sinni og ekki laust við að þeir gæfu hverjir öðrum hornauga.
,,Þetta er nýja mótmæla-átfittið," sagði Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður og benti á hóp lögfræðinga og fasteignasala sem tvístigu í glansandi jakkafötum með bindið reyrt upp í háls.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segir að samstaða ólíkra hópa tali sínu máli. Þarna hafi harðir kommúnistar staðið við hlið mikilla íhaldsmanna og allt þar á milli. Þau skilaboð hljóti að ná til þingmanna. Þeir þori kannski að taka af skarið ef öll þjóðin standi við bakið á þeim.
Til baka








Senda inn efni

