[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Vinnugleði á frístundaheimili.

Vinnugleði á frístundaheimili. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Innlent | mbl.is | 19.8.2009 | 17:08

100 vantar til starfa á frístundaheimilum

Áætlað er að nú vanti um 100 starfsmenn til starfa á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar.  Vel hefur þó gengið að ráða starfsmenn til starfa á frístundaheimilin í Reykjavík síðustu daga, að sögn Ómars Einarssonar, sviðstjóra hjá ÍTR.

Fyrr í dag var haldinn fundur með forstöðumönnum Frístundamiðstöðva og stjórnendum hjá ÍTR þar sem farið var yfir stöðu umsókna um vistun á frístundaheimilum og starfsmannamál.

Nú hefur verið sótt um vistun fyrir 2.745 börn á haustönn á frístundaheimilum við grunnskólana og hefur umsóknum fjölgað um 150 síðustu daga. Unnið er að ráðningum í þau störf þar sem enn vantar starfsmenn.

Þegar er búið að ráða 122 starfsmenn til starfa á frístundaheimili til viðbótar þeim 100 sem eru með heilsársráðningar. Alls hafa því verið ráðnir 222 starfsmenn til starfa á almennum frístundaheimilum.

Ómar segir fjölda umsókna um störf hafa borist síðustu daga og er unnið að yfirferð þeirra umsókna.

Nánari upplýsingar munu liggja fyrir e.h. föstudaginn 21. ágúst nk.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær