[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarberg, 221 Hafnarfjörður Lækjarberg Hafnarfjörður
Önundarholt, 801 Selfoss (dreifbýli) Önundarholt Selfoss (dreifbýli)
Kelduhvammur, 220 Hafnarfjörður Kelduhvammur Hafnarfjörður
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Fornaströnd, 170 Seltjarnarnes Fornaströnd Seltjarnarnes
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Hulduhlíð, 270 Mosfellsbær Hulduhlíð Mosfellsbær
Geitland, 108 Reykjavík Geitland Reykjavík
Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Útilistaverkið Hringiðan eftir Jónínu Guðnadóttur.

Útilistaverkið Hringiðan eftir Jónínu Guðnadóttur. Morgunblaðið/EB

Innlent | Morgunblaðið | 22.8.2009 | 10:50

Hringiða við Hálslón

Eftir Einar Ben Þorsteinsson

 Við Kárahnjúkastíflu Landsvirkjunar var á fimmtudag vígt útilistaverkið Hringiða. Verkið er eftir listamanninn Jónínu Guðnadóttur. Hún vann samkeppni listamanna um útilistaverk við Kárahnjúka.

Upphaflegar tillögur Jónínu gerðu ráð fyrir verki við hverja af þremur stíflum Kárahnjúkavirkjunar. Á síðari stigum var ákveðið að eitt verk skyldi sett upp við aðalstíflu Hálslóns. Þar stendur verkið á útsýnisstað og er í raun útsýnispallur þar sem sér yfir stóran hluta Hálslóns, til Snæfells, yfir stíflumúrinn og niður í Jökulsárgljúfur.

Af Hringiðu fæst því góð yfirsýn yfir umfang og umhverfi Kárahnjúkavirkjunar og verður vafalaust heitur reitur fyrir ferðamenn á þessum slóðum í framtíðinni.

Alveg eins og listamaðurinn hugsaði sér

Verkið, sem er hringlaga platti eða stétt, er gert úr íslensku grjóti af Kárahnjúkasvæðinu. Annars vegar úr hellugrjóti og hins vegar úr sérsöguðu blágrýti. Á stéttina er ritaður texti úr Völuspá og er letrið smíðað úr áli. Í miðju verksins er hringur, 7,5 metra breiður, sem er breidd aðrennslisganga Fljótsdalsstöðvar. Spírall liggur svo frá ystu brún verksins inn að miðju, sem táknar hringiðuna að aðrennslisgöngunum.

Listamaðurinn Jónína Guðnadóttir var hæstánægð með útkomu verksins. „Verkið er nákvæmlega eins og ég hafði hugsað mér það. Ég er mjög ánægð með útkomuna og ég hefði engu viljað breyta. Ég vil sérstaklega taka fram að öll vinna og samskipti vegna uppsetningar verksins voru afar ánægjuleg og eftirminnileg.“

Það var fyrirtækið Listigarðar ehf. sem sá um uppsetningu verksins eftir að hafa átt lægsta tilboðið í útboði Landsvirkjunar. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar var heildarkostnaður við verkið einhvers staðar á bilinu 20-30 milljónir króna. „Það hefur verið hefð hjá Landsvirkjun að setja upp listaverk við allar virkjanir fyrirtækisins. Hringiða er eitt af þremur listaverkum sem sett eru upp við Kárahnjúka. Tvö önnur listaverk voru vígð á síðasta ári.“

Eitt verk í stað þriggja

Upphaflegar tillögur listakonunnar Jónínu Guðnadóttur gerðu ráð fyrir verki við hverja af þremur stíflum Kárahnjúkavirkjunar. Á síðari stigum var ákveðið að eitt verk skyldi sett upp við aðalstíflu Hálslóns.

Verkið, sem er hringlaga platti eða stétt, er gert úr íslensku grjóti af Kárahnjúkasvæðinu. Í miðju verksins er hringur, 7,5 metra breiður, sem er breidd aðrennslisganga Fljótsdalsstöðvar. Spírall liggur svo frá ystu brún verksins inn að miðju, sem táknar hringiðuna að aðrennslisgöngunum.

Af Hringiðu fæst góð yfirsýn yfir umfang og umhverfi Kárahnjúkavirkjunar.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 12. mars