Meirihluti í HS orku verði frá hinu opinbera
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ GíslasonMARKAÐUR FRJÁLSHYGGJUNNAR ER GJALDÞROTA, OG Á ÞÁ
-
Baldvin BjörgvinssonAuðlindir í þágu þjóðar
-
Baldvin JónssonBYLTINGAR ER ÞÖRF - NÚ Á AÐ BYRJA AÐ GEFA
-
Sóley TómasdóttirMuniði eftir REI?
-
Haraldur BaldurssonMagma-Leikrit í uppfærslu Steingríms J.
-
Guðmundur Eyjólfur JóelssonGræðgi verður mönnum að falli
-
Friðrik Hansen GuðmundssonAð missa auðlindir landsins í hendur útlendinga.
-
Haugurinn bloggarSáraeinfalt að fella þetta mál
-
Einar GuðjónssonAllt eins og um var talað
-
Ægir Óskar HallgrímssonGleðitíðindi.
-
AK-72Spurningar varðandi tilboð Magma og einnig
-
Hallur MagnússonÆtlar Steingrímur að láta Orkuveituna vita af
-
Marta Gunnarsdóttir... að selja sig?
HS orka verður í meirihlutaeigu opinberra aðila og í tæplega helmingseigu Magma Energy ef hugmyndir sem nú eru uppi á borðinu hjá fjármálaráðuneytinu ganga eftir, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Fulltrúar fjármála- og iðnaðarráðuneytis, Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Magma Energy hafa átt í viðræðum um framtíðarskipulag HS orku frá því snemma í síðustu viku og er ofangreind niðurstaða afrakstur þeirra viðræðna. Frestur OR til að taka tilboði Magma í 32,32% hlut fyrirtækisins í HS orku rennur út í dag.
Hugmyndin er sú að Magma kaupi þá hluti sem fyrirtækið hefur þegar sóst eftir að kaupa og verði eftir það eigandi tæplega helmings eignarhlutar í HS orku.
Síðan mun íslenska ríkið, lífeyrissjóðir og sveitarfélög, m.a. Grindavík, reyna að eignast um 55% hlut í HS orku sem nú er í eigu Geysis Green Energy (GGE), en aðalfundur þess fyrirtækis er í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Landsbankinn, Íslandsbanki og lífeyrissjóðir reyna að fá allt að fjóra menn skipaða í nýja fimm manna stjórn GGE á þeim fundi og ná þar með meirihluta, en fjárhagsstaða fyrirtækisins er veik og framtíð þess í höndum helstu lánardrottna þess, sem eru ofangreindir bankar. Stjórnarmenn Landsbankans verða að nafninu til stjórnarmenn Atorku, sem í dag er stærsti eigandi GGE, en verða skipaðir af bankanum.
Til vara að kaupa hluti Magma
Gangi þessi leið ekki eftir herma heimildir Morgunblaðsins að stjórnvöld vilji að tryggt verði í samningum að þau geti gengið inn í kaup á 20 prósent af þeim 32,32 prósentum sem Magma hyggst kaupa af OR. Hugmyndir um að íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og OR myndu kaupa allan þann hlut sem Magma ætlar sér í HS orku hafa verið lagðar til hliðar, en þær voru ræddar af töluverðri alvöru fyrr í mánuðinum.Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni



