[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Innlent | mbl.is | 31.8.2009 | 15:03

Hálfkaraðar glæsihallir

Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur mbl sjónvarpi. tka@mbl.is
Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Bloggað um fréttina

Lítið hefur gerst á lóðum nýbygginga við Valhallarstíg á Þingvöllum út ári eftir að Mbl sjónvarp greindi frá gríðarmiklum framkvæmdum þar.

Í júlí í fyrra fluttu þyrlur og fjórhjól fluttu aðföng til glæsibyggingar Ágústs Guðmundssonar sem var í smíðum á Valhallarstíg en framkvæmdagleðin var slík að aðrir íbúar kvörtuðu eða flúðu bústaði sína undan hávaða.

Bogi Pálsson var einnig að byggja í júlí í fyrra eins og hér sést en það er líklega tímanna tákn að nýjar framkvæmdir við Valhallastíg hafa nánast staðið í stað.

Nú bregður svo við að kvartað hefur verið til þjóðgarðsins vegna þess að engar framkvæmdir eru á lóðunum en  byggingarefnið er þar hinsvegar enn.

Ný Þingvallanefnd tekur til starfa á fimmtudag. Sú eldri  kynnti eigendum sumarhúsalóða innan þjóðgarðsins á Þingvöllum drög að nýjum reglum um sumarhús í fyrra. Þar er lagt bann við nýbyggingum og girðingum um einkalóðir. Ný Þingvallanefnd verður meðal annars  að ákveða hvort lóðarleigusamningar sem eru að renna út í þjóðgarðinum verða framlengdir eða ekki.

Þá  er einnig verulega umdeilt hvort það verður byggt hótel eða veitingahús í stað Hótels Valhallar sem brann í sumar en það kemur meðal annars í hlut nýrrar Þingvallanefndar að skera úr um það.

 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær