Bloggheimar loga vegna ákvörðunar forsetans
Bloggað um fréttina
-
Rakel SigurgeirsdóttirVonandi berst forsetanum þetta bréf!
-
Sigurður JónssonDatt einhverjum í hug að Ólafur Ragnar meinti
-
Páll VilhjálmssonForseti skrifar sig á ruslahaug sögunnar
-
Þórkatla SnæbjörnsdóttirFréttastofur eiga að skammast sín. Eins gott að
-
Benjamín PlaggenborgNú vill fólk sko hafa forseta!
-
Rúnar Þór ÞórarinssonVannýting málskotsréttarins
-
Sveinn hinn UngiVirðingarleysi gagnvart forsetanum
-
Axel Þór KolbeinssonMá ég loga líka?
-
Árelíus Örn ÞórðarsonDapur dagur á Bessastöðum.
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirLosum okkur við öryggisventil spillingarinnar
-
Óttarr GuðlaugssonEf ég væri fyrrum kosningastjóri forsetans hvað þá
-
Baldur Már RóbertssonÞetta gerir forsetan að ómerkingi.
-
Hjörtur J. GuðmundssonGeðþóttaákvörðun eins manns
-
Arnþór HelgasonHverjir þvældust fyrir?
-
Sigurveig EysteinsdóttirSamþykkja eða ekki..................
Óhætt er að segja að bloggheimar logi vegna þeirrar ákvörðunar forseta íslands að staðfesta lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninga við Hollendinga og Breta.
Tugir hafa sagt álit sitt á frétt um staðfestinguna og lýsa margir yfir mikilli óánægju með ákvörðun forsetans.
Gera athugasemdir við yfirlýsingu
Forsvarsmenn vefsíðunnar kjosa.is segja í yfirlýsingu að fullyrðing í fréttatilkynningu forseta Íslands um staðfestingu Icesave-laganna sé röng.
Í yfirlýsingu forseta Íslands segir: „Eðlilega er þó enn andstaða við málið meðal almennings eins og undirskriftir um 10.000 Íslendinga, sem forseta hafa borist, eru meðal annars til vitnis um.“
Forsvarsmenn kjosa.is segja fullyrðinguna ranga. Í áskorun sem rúmlega 10 þúsund Íslendingar skrifuðu undir og afhent hafi verið forseta Íslands, hafi engin afstaða verið tekin með eða á móti Icesave-frumvarpinu.
„Þess var aðeins krafist að þjóðin fengi sjálf að gera út um málið, eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar fyrr og síðar, svo vitnað sé til orða forsætisráðherra. Til marks um andstöðu í samfélaginu við frumvarpið og fyrirliggjandi samninga hefði forseti getað vitnað beint til nýlegrar könnunar Gallup eða þeirra tugþúsunda sem hafa tjáð sig á facebook-síðum,“ segir í yfirlýsingu forsvarsmanna kjosa.is.
Frétt mbl.is um staðfestingu Icesave-laga
Til baka








Senda inn efni


