

Fjöldi fólks fylgdist með umræðu um sölu á hlut Orkuveitunnar í HS Orku á fundi borgarstjórnar í dag. mbl.is/Heidar
Samningurinn samþykktur í borgarstjórn
Bloggað um fréttina
-
Jens ÓlafssonVinstri menn alltaf jafn málefnalegir og
-
Þórður Már JónssonApaplánetan eða Ísland?
-
Þórhildur Fjóla KristjánsdóttirVerður að breyta lögunum og snúa vörn í sókn
-
AK-72Magma-leiksýning fáránleikans í Hringleikahúsi
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirFinnur Ingólfsson, Bjarni Ármannsson og Árni
-
Jón Guðbjörn GuðjónssonVið látum þetta ekki úr landi.
-
Sveinn hinn UngiÍhaldið selur skúffufyrirtæki orkuauðlindirnar
-
Dofri HermannssonÞau hafa ekkert lært
-
Tryggvi ÞórarinssonGott að fá fjármagn inn í landið, ekki veitir af.
-
Heiða B. HeiðarsKlósettpappírsrúlla
-
Óðinn ÞórissonEr þetta gæfuspor ?
-
Ragnar Örn EiríkssonSkipulögð glæpasamtök framsóknar og
-
Axel Jóhann AxelssonFarsæl og góð niðurstaða
-
Haraldur HaraldssonSala HS Orku samþykkt !!!!/svartur dagur
-
Stefán Helgi KristinssonSvikarar og landráðamenn!
-
Gísli Foster HjartarsonHallelúja....
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur staðfest samninginn um sölu á 31% hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku til Magma Energy Sweden, sænsks dótturfélags kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy Corporation, með átta atkvæðum meirihlutans gegn sjö minnihlutans.
Í kjölfarið var kallað af áhorfendapöllum í Ráðhúsinu: Vanhæf borgarstjórn, vanhæf borgarstjórn. Þrír úr hópi áhorfenda voru handteknir eftir að salernisrúllu var kastað af áhorfendapöllum í fundarsalinnn.
Var hlé gert á fundinum um stund, á meðan verið var að róa niður áhorfendur á pöllunum. Fundarstörf hafa hafist að nýju, þar sem verið að ræða einkarekna grunnskóla.
Um tíma voru frammíköll mikil og meðal þess sem áhorfendur hafa kallað: „Djöfull megiði vera stolt af því sem þið hafið gert í dag."
Í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra segir, að með samningnum á sölu Orkuveitunnar á hlutnum í HS Orku sé greitt úr óvissu sem ríkt hafi eftir að Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Orkuveitan mætti ekki eiga svo stóran hlut í HS Orku. Héraðsdómur Reykjavíkur hafi engu að síður dæmt fyrirtækiðr til að standa við samninga um kaup á hlutnum.
Borgarstjóri segir að Orkuveitan hafi lagt áherslu á að með sölunni sé verið að virða úrskurð samkeppnisyfirvalda og samkeppnislög, leysa ágreining fyrirtækisins við Hafnarfjarðarbæ og styrkja fjárhagsstöðu Orkuveitunnar.
Til baka








Senda inn efni

