Grunaður um stuld á upplýsingum frá RSK
Bloggað um fréttina
-
Helgi Jóhann HaukssonHér má finna kjarnann í hruninu og spillingunni
-
Hrafn ArnarsonHvert er hlutverk ríkisskattstjóra ?
-
Kolbrún HilmarsEr tímabært að létta á ríkisskattstjóraembættinu?
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirRíkisskattstjóri í lið með útrásarvíkingum
-
Gunnar WaageEmbætti Ríkisskattstjóra með klaka
-
Ólína ÞorvarðardóttirHvað gengur ríkisskattstjóra til?
-
Jón Sævar JónssonSpilltur ríkisskattstjóri?
-
Jón Örn ArnarsonAllt upp á borðið
-
Jóhann ElíassonEr ríkisskattstjóri varðhundur "SPILLINGARAFLANNA"
-
Hólmdís HjartardóttirAllt gert til að halda öllu undir borðum?
-
Bergur ThorbergLátum siðspillinguna ekki stoppa Jón Jósef og rel8
-
Bjarni KjartanssonOfurmannlegur asnaskapur.
-
Konráð RagnarssonHVAÐA SKÚRKUR HRINGDI Í ÞIG SKÚLI???
-
Salvör Kristjana GissurardóttirSkrýtin tilkynning ríkisskattstjóra
-
Jón Aðalsteinn JónssonRöggsamt stjórnvald
-
Sigurjón SveinssonOg skattmann stelur engu?
-
Einar B BragasonAllt upp á borðið - Við krefjumst þess að
-
Jakob Falur KristinssonSakaður um þjófnað
-
Jenný Anna BaldursdóttirSikiley norðursins
-
Þórarinn Þ GíslasonÁSAKAÐUR UM ÞJÓFNAÐ ER ALVÖRUMÁL,!..VEIT
-
Lúðvík LúðvíkssonRíkisskattstjóri þjófkennir í beinni
-
Óskar Steinn ÓmarssonStinga honum inn
Forráðamaður IT ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf., sem ætlaði að birta upplýsingar um tengsl fyrirtækja og einstaklinga úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, hafði undir höndum og nýtti sér upplýsingar úr hlutafélagaskrá án heimildar. Ríkisskattstjóri segir að ekki verði betur séð en að forráðamaðurinn hafi sem fyrrum starfsmaður ríkisskattstjóra tekið upplýsingarnar án heimildar og er sá þáttur nú til sérstakrar meðferðar.
Í fréttatilkynningu frá ríkisskattstjóra segir að í ljósi umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið um lokun á aðgangi IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf. að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra sé rétt að taka fram að samningar um miðlun upplýsinga úr hlutafélagaskrá byggi á þeirri forsendu að sá sem hyggst miðla upplýsingum hafi til þess starfsleyfi frá Persónuvernd.
Samningur við umræddan aðila hafi verið gerður í trausti þess að slíkt leyfi lægi fyrir áður en niðurhal og notkun upplýsinga hæfist. Þegar í ljós hafi komið að svo var ekki, hafi verið lokað fyrir aðgang hlutaðeigandi. Þá segir að ekki liggi fyrir afstaða Persónuverndar varðandi þá framsetningu og tengingu upplýsinga sem miðlarinn hugðist birta umfram þá almennu birtingu sem starfsleyfi miðlara hafa kveðið á um.
„Þá hefur komið í ljós að IT Ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf. hafði undir höndum og nýtti sér upplýsingar úr hlutafélagaskrá sem ekki verður betur séð en að forráðamaður þess hafi sem fyrrum starfsmaður ríkisskattstjóra tekið án heimildar. Sá þáttur er nú til sérstakrar meðferðar,“ segir í tilkynningu ríkisskattstjóra.
Þá er áréttað að embætti ríkisskattstjóra er mjög áfram um að upplýsingagjöf til almennings sé með sem bestum hætti og gagnsæi sé haft að leiðarljósi. Slíkt þurfi þó ætíð að rúmast innan ramma laga og persónuverndar. Ríkisskattstjóri geti þannig ekki ljáð atbeina embættisins til að stunduð sé upplýsingamiðlun úr gagnagrunnum þess nema uppfyllt séu skilyrði laga, hversu göfug sem markmiðin eru. Ríkisskattstjóri segir að lagaskilyrðin hafi ekki verið uppfyllt hjá IT ráðgjöf og hugbúnaðarþjónustu ehf.
„Þá hefur forráðamaður IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf. lýst nauðsyn á auknu gagnsæi með kortlagningu eigenda félaga og rekstrar þeirra. Í ljósi þess vekur það athygli að það félag hefur á hinn bóginn ekki virt skýr fyrirmæli laga um afhendingu ársreikninga undanfarin þrjú ár,“ segir í tilkynningu ríkisskattstjóra.
Til baka








Senda inn efni




