Hollendingar bjartsýnir
Bloggað um fréttina
-
Arnar Geir KárasonVissulega góð niðurstaða fyrir alla aðila málsins
-
Páll BlöndalTæklum þetta bara
-
Gunnar GunnarssonGeta trútt um talað
-
Sturla Hólm JónssonEr þjóðin með fullri viringu fyri henni er hún
-
Reynir JóhannessonAfléttum leyndinni
-
Haraldur HaraldssonHollendingar bjartsýnir /Hvaða er í
-
Páll VilhjálmssonStjórnarkreppa leysir Icesave
-
Bjarni KristjánssonGerum hrossakaup á IceSave: Lægri vexti gegn
-
Baldvin BjörgvinssonHver borgar Icesave? Essasú?
-
Axel Jóhann AxelssonÞrælapískurinn á lofti
-
Jón Ingi CæsarssonAfstaða Sjalla og Framsóknar er flokkapólitík.
-
FjarkiBretar og Hollendingar.
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirÉg fæ gæsahúð
-
Halldór Björgvin JóhannssonÞá vitum við það..
„Ég veit að í íslenskum fjölmiðlum hefur verið talað um 2024 mörkin en
okkar afstaða er sú að peningarnir verði að skila sér á einn hátt eða annan. Við eigum nú í mjög jákvæðu og uppbyggilegu sambandi við bresk og íslensk yfirvöld," segir talsmaður hollensku samninganefndarinnar vegna Icesave-samninganna í samtali við mbl.is.
„Við erum mjög bjartsýn og vonumst til og teljum að við getum náð góðri niðurstöðu fyrir alla aðila málsins, “sagði talsmaðurinn um væntingar Hollendinga. Hann vildi ekki tjá sig um inntak hugmynda hollenskra stjórnvalda sem íslensk stjórnvöld íhuga nú. Hann vildi ekki heldur staðfesta það sem komið hefur fram í fjölmiðlum að Bretar og Hollendingar leggi til að íslensk ríkisábyrgð verði framlengd um 16 ár, eða til 2040.
Hollensk stjórnvöld hafa ekki sett tímamörk fyrir svör íslenskra
stjórnvalda en vænta þess að fá svör eins fljótt og auðið er. „Þetta er ferli sem verður að vinna vel og því virðum við að allir málsaðilar taki
sinn tíma," segir talsmaðurinn.
Til baka








Senda inn efni



