[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri

mbl.is/KG

Innlent | mbl.is | 23.9.2009 | 10:48

Engin sérleyfi á Drekasvæðinu

Sagex Petroleum og Lindir Exploration hafa dregið til baka umsókn sína um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Fyrr í sumar dró Aker Exploration umsókn sína til baka. Orkustofnun mun því ekki ekki veita sérleyfi á þessu ári til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu.

Orkustofnun barst síðdegis í gær erindi frá Sagex Petroleum, þar sem sameiginleg umsókn félagsins og Lindir Exploration um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu er dregin tilbaka.
 
Þann 15. maí sl. rann út frestur til að sækja um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði. Orkustofnun bárust þá umsóknir Aker Exploration  og Sagex Petroleum og Lindir Exploration.

Fyrr í sumar dró Aker Exploration umsókn sína til baka vegna breyttrar stefnumörkunar hjá fyrirtækinu í kjölfar samstarfs og síðar samruna við annað fyrirtæki.
 
Á vef Orkustofnunar segir að í ljósi þessa muni stofnunin ekki veita sérleyfi á þessu ári samkvæmt skilmálum fyrsta útboðs á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Stefna um framhaldið verði mótuð á næstunni af viðkomandi stjórnvöldum.
 
Í samskiptum við þau olíuleitarfyrirtæki sem sýndu útboðinu áhuga, en sóttu hins vegar ekki um sérleyfi, kom fram að helstu ástæður fyrir því að þau sátu hjá að þessu sinni voru m.a. bágt efnahagsástand á útboðstímabilinu með tilheyrandi skorti á nýju fjármagni og mikil áhætta sem fylgir því að hefja rannsóknir á nýju svæði eins og Drekasvæðið er.

  • Drekasvæðið.
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær