[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen komu til starfa á Morgunblaðinu í morgun.

Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen komu til starfa á Morgunblaðinu í morgun. mbl.is/RAX

Innlent | mbl.is | 25.9.2009 | 09:38

Nýir ritstjórar komnir til starfa

Bloggað um fréttina

Þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, nýir ritstjórar Morgunblaðsins, komu til starfa í Morgunblaðshúsinu um klukkan 9:30 í morgun. Davíð sagði að gaman væri að vera kominn á fornar slóðir en hann starfaði um tíma hjá Morgunblaðinu á námsárum sínum. 

Davíð sagði við mbl.is, þegar hann var spurður um gagnrýnisraddir vegna ráðningar hans sem ritstjóra, að gott væri að slíkar raddir séu til. „Blað gengur út á að koma gagnrýnisröddum að svo allir geti komist að eigin niðurstöðum þegar öll sjónarmið hafa fengið framgang," sagði Davíð.

Um þær fullyrðingar, að fyrri störf Davíðs muni varpa rýrð á trúverðugleika Morgunblaðsins, sagði hann að oftast væri það svo, ef menn færu vel með sitt, að það sem þeir hefðu í farangri sínum, sé frekar til þess fallið að menn noti það hinu nýja starfi sínu til framdráttar.

„Ég býst við að það sé það sem fyrir þeim sem að ráðningunni standa, vaki, að menn notfæri sér þann forða sem menn hafa aflað sér á langri vegferð og ég hlakka til þess að moða úr því,"  sagði Davíð Oddsson.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag