Vill sérstakan loftslagssjóð
Bloggað um fréttina
-
Tryggvi ThayerEins og þessi sjóður?
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, lagði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi, til að sérstakur loftslagssjóður yrði settur á stofn á heimsvísu til að kosta yfirfærslu endurnýjanlegrar orkutækni til þróunarríkja til þess að gera þeim kleift að breyta orkukerfum sínum yfir á endurnýjanlegan grunn.
Össur fjallaði í ræðunni um loftslagsbreytingar og sagði útslitaatriði að þjóðir heims sameinuðust um að ná bindandi samkomulagi um takmörkun gróðurhúsalofttegunda í Kaupmannahöfn í desember. Hann vitnaði til reynslu Íslendinga af jarðhita og hvatti til þess að þekking þeirra og annarra jarðhitaþjóða yrði nýtt í löndum Afríku, Suðaustur Asíu og rómönsku Ameríku þar sem miklir möguleikar væru á að nýta jarðhita til að draga úr útblæstri.
Hann sagði jafnframt að sökum hinna gríðarlegu og öru breytinga á norðurslóðum vegna hlýnunar jarðar væru Norðurslóðamál nú eitt af helstu áherslumálum í utanríkisstefnu Íslands.
|
|
Ræða Össurar Skarphéðinssonar á ensku |
Til baka








Senda inn efni




