[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir kemur á þingflokksfund VG.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir kemur á þingflokksfund VG. mbl.is/Ómar

Innlent | mbl.is | 30.9.2009 | 17:11

Styðja allir áframhaldandi stjórnarsamstarf

„Það kom fram á fundinum að allir styðja eindregið áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf,“ sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þinflokksformaður Vinstri grænna, að loknum þingflokksfundi síðdegis.

Nokkrir þingmenn Vg eru fjarverandi í dag og mun þingflokkurinn því aftur koma saman til fundar í kvöld.

„Mér finnst skelfilegt að Ögmundur skuli segja af sér sem heilbrigðisráðherra vegna þess að þar missum við einn ötulasta baráttumanninn fyrir góðu íslensku velferðarkerfi úr stærsta og mikilvægasta ráðuneytinu,“ sagði Guðfríður Lilja.

„Hvað Icesave-málið varðar þá hefur hvorki Ögmundur né nokkurt okkar hinna sagt að við værum á móti því sem er hugsanlega í spilunum í Icesave-málinu. Við viljum bara fá að skoða málin, fá þingræðislega, lýðræðislega og opna meðferð málsins. Ögmundur gengur úr ríkisstjórninni vegna þess að það er gerð krafa um að við ríkisstjórnarborðið sé bara ein skoðun á Icesave. Ég lít svo á að hann hafi gengið úr ríkisstjórninni til þess að bjarga henni, vegna þess að þessi krafa er gerð.

Ég trúi því að baráttan í sumar um Icesave hafi orðið mjög til góðs. Þó sagt sé að mikill tími hafi farið í þetta mál í sumar, þá er staðreyndin sú að þingmenn hefðu bara verið í sumarfríi ef þessi umræða hefði ekki farið fram og það gerir að verkum að allir eru núna mjög vel inn í því máli og skilja þaðö til hlítar. Nú snýst spurningin um að málið fái áfram þingræðislega meðferð og þá held ég og trúi að það verði farsællega til lykta leitt,“ segir hún.

Ekkert var rætt á þingflokksfundinum í dag hver tæki við embætti heilbrigðisráðherra í stað Ögmundar. Aðspurð vildi Guðfríður Lilja ekki tjá sig um hvort orðað hafi verið við hana að taka að sér ráðherraembætti.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Ögmundur hættur

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 21:19

Niðurskurður er óhjákvæmilegur

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 21:15

Ung vinstri græn styðja Ögmund

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 20:33

Fær Steingrímur umboð í kvöld?

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 20:07

Icesave-athugasemdir víðtækari en fram hefur komið

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 20:03

„Hér er þingræði“

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 19:46

Enginn bilbugur á stjórninni

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 19:36

Ríkisráðsfundur á morgun

Innlent | mbl | 30.09.2009 | 19:33

Á vinsamlegum nótum

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 18:24

Ríkisstjórnarfundur hafinn

Innlent | mbl.is | 30.09.2009 | 18:06

Samfylking styður stjórnarsamstarfið

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær