[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að fyrirspurn menntamálaráðherra verði svarað sem fyrst.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að fyrirspurn menntamálaráðherra verði svarað sem fyrst. mbl.is/Sverrir

Innlent | mbl.is | 9.11.2009 | 15:20

Segist ekki hafa notað greiðslukort KSÍ vísvitandi

Fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands notaði ekki greiðslukort sambandsins vísvitandi þegar hann heimsótti næturklúbb í Sviss fyrir fjórum árum, og endaði með 67.000 franka reikning. Þetta segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, og bætir við að sambandið hafi tekið skýringar fjármálastjórans gildar.

„Það voru engar undirskriftir hans á þeim sneplum sem við kölluðum eftir til að fá frá kreditkortafyrirtækinu,“ segir Geir í samtali við mbl.is og bætir við að Pálmi Jónsson, fjármálastjóri KSÍ, hafi orðið fyrir barðinu á skipulagðri glæpastarfsemi í Zürich árið 2005. Greiðslukort Pálma hafi því verið notuð í heimildarleysi.

Pálmi sagði í Morgunblaðinu á laugardag að fjórir menn hafi játað að hafa misnotað kreditkort hans á næturklúbbi í Sviss, hann hafi fengið endurgreiðslu og því telji hann að mannorð sitt hafi verið hreinsað. 

Menntamálaráðherra hefur farið fram á að forsvarsmenn KSÍ gefi fullnægjandi skýringar vegna heimsóknar fjármálastjórans á næturklúbbinn. Erindið verður sent síðar í dag.

„Við munum vitanlega svara ráðherra og fara yfir þetta mál,“ segir Geir.

 

 

 

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag