[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ægisgata, 101 Reykjavík Ægisgata Reykjavík
Lambafell, 861 Hvolsvöllur (dreifbýli) Lambafell Hvolsvöllur (dreifbýli)
Tungusel, 109 Reykjavík Tungusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Njálsgata, 101 Reykjavík Njálsgata Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Laugavegur, 101 Reykjavík Laugavegur Reykjavík
Ásbraut, 200 Kópavogur Ásbraut Kópavogur
Dalbraut, 105 Reykjavík Dalbraut Reykjavík
Horft yfir Keflavík.

Horft yfir Keflavík. mbl.is/ÞÖK

Innlent | mbl.is | 2.12.2009 | 20:11

1.729 atvinnulaus á Suðurnesjum

Bloggað um fréttina

957 karlar og 772 konur eru án atvinnu á Suðurnesjum í dag, eða samtals 1.729 manns. Að sögn Ketils Jósefssonar, forstöðumanns Vinnumálastofnunnar á Suðurnesjum, er atvinnuástandið verulega bágborið en reynt er að útvega atvinnuleitendum úrræði til gagns á meðan beðið er betri tíðar.

„Nóvember, desember og janúar eru myrkir, langir og kaldir. Það virðist hafa áhrif hvort sem árferði er gott eða slæmt. Við erum samt bjartsýn og horfum fram á betri tíma með hækkandi sól. Álver, gagnaver og ég veit ekki hvað stendur okkur til boða og næstum búið að leysa alla liði nema orkuliðinn en eins og landinn segir: Þetta reddast einhvern veginn,“ segir Ketill.

Í millitíðinni nýtir Vinnumálastofnun á Suðurnesjum tímann til að útvega öll þau úrræði sem hægt er. „Við erum með ákveðin skyldunámskeið sem hverjum og einum er boðið upp á sem heitir Árangursrík starfsleit. Þar er farið í færnimöppu og gerð ferilskrár,“ segir Ketill. „Við vinnum í góðu samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Tölvuskóla Suðurnesja svo einhverjir séu nefndir, en hjá þessum aðilum standa okkur til boða ýmis námskeið til lengri eða skemmri tíma fyrir okkar fólk.“

Þá hefur Vinnumálastofnun á Suðurnesjum verið í góðu samstarfi við atvinnulífið þar sem boðið er upp á starfsþjálfunarsamninga í 3-6 mánuði. Samvinna/endurhæfing er svo nýjasta aflið sem varð til á síðasta ári þar sem allir áðurnefndir ásamt Heilbrigðisstofnun og Vinnumálastofnun koma að málum. „Þarna er fyrst og fremst verið að aðstoða fólk með skerta starfshæfni, bæði bóklega og verklega. Þarna vinnur faglegt teymi að því að gera þessum einstaklingum kleift að komast aftur út á vinnumarkaðinn.“

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 13. mars