[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Grindavík.

Grindavík. www.mats.is

Innlent | mbl.is | 4.12.2009 | 11:24

Meirihlutinn sprunginn í Grindavík

Bæjarfulltrúar Vinstri Grænna í Grindavík hafa sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að þeir styðja ekki lengur meirihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar í Bæjarstjórn Grindavíkur. Þess í stað hafa þeir óskað eftir viðræðum við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu um meirihlutasamstarf. Þetta kemur fram á vef bæjarfélagsins. Samfylkingin er með einn bæjarfulltrúa en framsókn tvo. Bæjarfulltrúar VG eru tveir og Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo bæjarfulltrúa.

Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík, kvaddi samstarfsfólk sitt á bæjarskrifstofunum í morgun. Sem kunnugt er hefur Jóna Kristín verið skipaður sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli.

Tilkynning Vinstri grænna um samstarfsslitin er eftirfarandi: „Í ljósi þess að bæjarfulltrúar B-lista hafa hugsað sér það fyrirkomulag að hafa engan bæjarstjóra starfandi til vors (eða þrjá) geta bæjarfulltrúar Vinstri grænna í bæjarstjórn Grindavíkur ekki stutt núverandi meirihluta B- og S-lista. Grindavíkurbær þarf á styrkri hönd við stýrið til að takast á við þau mörgu mikilvægu mál sem framundan eru. Með von um jákvætt og gott samstarf með bæjarstjóra við stýrið. Björn Haraldsson og Garðar Páll Vignisson."

Þá hafa Vinstri græni sent eftirfarandi bréf til Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar: „Þar sem bæjarfulltrúar Vinstri grænna geta ekki stutt núverandi meirihlutasamstarf B- og S-lista óskum við eftir viðræðum við D- og S- lista um samstarf með það að leiðarljósi að hafa bæjarstjóra í fullu starfi starfandi til vors auk þess að vinna að framgangi góðra mála. Björn Haraldsson og Garðar Páll Vignisson."

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær