[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Goðafoss er í Skjálfandafljóti.

Goðafoss er í Skjálfandafljóti. mbl.is/Einar Falur

Innlent | mbl.is | 11.12.2009 | 16:40

Leggjast gegn friðun alls Skjálfandafljóts

Samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar í vikunni, að leggjast eindregið gegn því að allt Skjálfandafljót verði friðlýst.

Um var að ræða umsögn um þingsályktunartillögu um friðlýsingu Skjálfandafljóts og alls vatnasviðs þess ofan Mjóadalsár, sem Þuríður Backman og fleiri þingmenn lögðu fram á Alþingi.

Fram kemur í samþykkt sveitarstjórnarinnar, að unnið sé að aðalskipulagi Þingeyjarsveitar og standi vonir til að það verði staðfest fyrir mitt næsta ár. M.a. hafi verið rætt um að friða hluta Skjálfandafljóts en þar falli undir þeir staðir sem þegar eru á náttúruminjaskrá, eins og Goðafoss, Aldeyjarfoss, Hrafnabjargafoss og Þingey.

Í vinnudrögum aðalskipulags sé lagt til að  fallið verði frá öllum virkjunaráformum í Skjálfandafljóti, þar á meðal áformum um Hrafnabjargavirkjun. Hins vegar vilji sveitarfélagið áskilja sér rétt til að nýta vatn úr Skjálfandafljóti til vistvænnar starfsemi, eins og t.d. kælivatnstöku fyrir tölvugagnaver þar sem vatninu yrði skilað aftur í fljótið.

„Sveitarstjórn leggst í sjálfu sér ekki gegn því að vatnasvið Skjálfandafljóts verði friðlýst ofan Mjóadalsár. Sveitarstjórn telur eðlilegt að afstaða til slíkrar friðunar verði tekin í aðalskipulagi sveitarfélagsins áður en ríkisvaldið tekur fram fyrir hendurnar á sveitarfélaginu í skipulagsmálum. Sveitarstjórn og skipulagsnefnd hafa í vinnu sinni við aðalskipulagsgerðina lagt sig fram um að gæta að umhverfisþætti skipulagsmála í hvívetna," segir í umsögninni.

Vefur Þingeyjarsveitar

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag