Boða rafræna þjóðarkosningu um Icesave
Bloggað um fréttina
-
Iris AgustsEinn galli...
-
Gunnlaugur I.Frábært framtak Eyjunnar. Virkt lýðræði í reynd.
-
Ridar T. Falls6 orða saga #709
-
Ómar Bjarki SmárasonEr Eyjan hlutlaus sjálfstæð stofnun....
-
Sigrún JónaEkki alvöru.
-
Guðsteinn Haukur BarkarsonLofsvert framtak Eyjunnar.is
Vefmiðillinn Eyjan hefur boðað til blaðamannafundar í höfuðstöðvum sínum kl.15:30 í dag. Í fundarboðinu kemur fram að tilgangurinn með fundinum sé að hleypa af stokkunum rafrænni kosningu á meðal almennings um hvort veita skuli ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu.
Um sé að ræða þjóðarkosningu sem fram mun fara á netinu dagana 13.-17. desember. „Þetta er fyrsta örugga rafræna atkvæðagreiðslan hér á landi sem allir íslenskir kjósendur geta tekið þátt í. Notast er við kerfið Íslendingaval þróað af Íslenskri erfðagreiningu. Kerfið tryggir fullkomið öryggi og nafnleynd,“ segir m.a. í fundarboðinu.
Á fundinum muni ritstjóri Eyjunnar Guðmundur Magnússon og fulltrúar Íslenskar erfðagreiningar fara nánar yfir hvernig kosningin fer fram og hver tilgangurinn með henni sé.
Til baka








Senda inn efni



