Óttast að aðalbláberin hverfi
Bloggað um fréttina
-
Morten LangeÞað er gott að sjá fréttir af þessu litlu sem menn
-
Ómar Bjarki SmárasonÓvíst að berin hverfi....
-
Loftur Altice ÞorsteinssonBjörgum líka mannfólki – ekki bara bláberjum
-
Kristinn PéturssonAf hverju eru Ísfirðingar hringja uppí efra til að
Kirkjuklukkunum á Ísafjarðarkirkju var hringt 350 sinnum kl. 15 á sunnudag. Gjörningurinn var á alheimsvísu og til þess að minna á hugsanlega umhverfisvá vegna hlýnunar andrúmsloftsins af völdum koltvísýringsmengunar. Að hringingu lokinni voru flutt tvö stutt erindi í Ísafjarðarkirkju um áhrif loftlagsbreytinga á norðurhjarann og Ísland.
Þar kom meðal annars fram að hlýnunin hefði í för með sér breytingar á náttúrufari á Íslandi.
„Þrennt var það, sem viðstaddir höfðu áhyggjur af. Í fyrsta lagi hvaða
áhrif þetta hefði á fiskimiðin við Íslandsstrendur. Í öðru lagi var það hækkun
sjávar, sem gæti valdið vandræðum hér á eyrinni á Ísafirði. Og í þriðja lagi var
það sá möguleiki að aðalbláberin hyrfu héðan af svæðinu vegna minni snjóalaga.
Nátengt þessu er sú staðreynd að líklegt er að skíðavertíðin eigi eftir að
styttast,“ segir í frétt á vef Ísafjarðarkirkju.
Til baka








Senda inn efni



